140. löggjafarþing — 93. fundur,  2. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[23:59]
Horfa

Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef gegnt formennsku í hagsmunasamtökum sem heita Landssamtök sauðfjárbænda. Ég er nýlega hættur því og það er einfaldlega eftir að hafa farið um landið og hitt bændur sem ég segi þetta. Viðhorf bænda er á þann veg að þeim finnst hæstv. ríkisstjórn tala niður íslenskan landbúnað. Þetta kann að orsakast af mörgu og kannski meðal annars af því að mikil umræða hefur verið um landbúnaðarmál í fjölmiðlum. Sú umræða hefur verið rekin af ýmsum hagsmunaaðilum í hinum ýmsu geirum en það er engin launung að ýmsir pólitíkusar hafa tekið þátt í þeirri umræðu og hefur fundist nauðsynlegt að skipa landbúnaðarmálum öðruvísi en verið hefur, með breyttri landbúnaðarstefnu o.fl.

Sumum bændum hefur fundist þessi umræða ákaflega óvægin. Margir hafa haft þá skoðun að kratar séu bara einfaldlega alltaf á móti landbúnaðinum. Nú skal ég ekkert fullyrða um það — ég hef rætt við hv. þingmenn Samfylkingarinnar sem hafa mikinn áhuga á landbúnaði og finnst mikilvægt að landbúnaðurinn komi sjónarmiðum sínum á framfæri alls staðar.

Hvað varðar sjávarútveginn, eins og ég nefndi líka og hv. þingmaður talaði um, er ljóst að miðað við umræðuna um frumvarp um fiskveiðistjórnina hafa stjórnarliðar látið orð falla sem ekki eru hafandi eftir. Menn sem lifa og starfa í sjávarútvegi hafa verið kallaðir ýmsum illum nöfnum sem ég ætla ekki að hafa eftir. Það er kannski helst það sem ég var að vísa til í málflutningi mínum hvað þetta varðar.