breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Ég er kominn upp til að höggva í sama knérunn. Ég þarf, eins og margir aðrir þingmenn, að mæta á nefndarfund í fyrramálið og ég er á mælendaskrá þannig að ég er að spá í hvað hugtakið miðnótt þýðir hjá hæstv. forseta. Er það það sem við hin köllum miðnætti? Mér þætti vænt um ef hæstv. forseti gæti skýrt þetta betur út fyrir mér og sagt okkur, hinum dauðlegu, hvort miðnótt er það sama og miðnætti. Þá gæti maður kannski frekar reiknað út hvenær hugsanlega gætu orðið lok á þessum fundi í kvöld.