störf þingsins.
Frú forseti. Í umræðunni um störf þingsins í gær kom hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson upp og kallaði eftir því að við ræddum aðeins nánar um hinn svokallaða Gini-stuðul í framhaldi af umræðu okkar um aukinn jöfnuð sem sýnt hefur verið fram á í skýrslu Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands. Mér finnst sjálfsagt að svara þessu kalli þingmannsins og geri það með gleði og vil af því tilefni halda áfram að ræða aðeins skýrslu Þjóðmálastofnunar HÍ.
Gini-stuðullinn er viðtekinn mælikvarði á ójöfnuð í skiptingu tekna milli manna og sé hann notaður kemur í ljós, eins og skýrslan sýnir, að hvergi í vestrænu ríki varð hraðari eða meiri ójöfnuður eftir seinna stríð en á Íslandi. Þessi stuðull hækkaði um helming á árunum 1995–2004 og hélt svo áfram að hækka fram yfir hrun en hefur lækkað verulega síðan. Núna er lífskjarajöfnuður á Íslandi svipaður og hann var á árunum 1998–1999 og ef við skoðum fleira í kjörum og skilyrðum okkar eftir hrun, skoðum til dæmis tölur um atvinnuleysi, þá fór Ísland úr 10. sæti á listanum yfir atvinnuleysi Evrópuþjóða í það 20. Eftir samdráttarskeiðið eru kaupmátturinn og lífskjörin að batna á ný, kaupmátturinn 4,6% í mars sl., hæsti kaupmáttur á þessari öld og allt frá árinu 1989 þannig að það þýðir ekkert að kæfa þessar staðreyndir með hávaða. Þetta eru reyndar staðreyndir sem mönnum hugnast greinilega ekki mjög vel að ræða en þær eru staðreyndir engu að síður og í þessu mun sannast það sem segir í þulunni gömlu:
Hver fer svo hratt sem hún flygi?
Það er hún lygi.
En þó hún fari hraðar en augað má sjá,
fer sannleikur á eftir og mun henni ná.
Ég trúi því að það muni verða niðurstaðan þegar lagður verður dómur á verk núverandi félagshyggjustjórnar. (Gripið fram í: … er Guðlaugur Þór að …)