kreppa krónunnar.
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. síðasta ræðumanni um að spurningin sem við stöndum frammi fyrir um úrræði gagnvart krónu í höftum er verkefni sem við verðum að ná víðtækri samstöðu um. Það er óásættanleg staða sem við stöndum frammi fyrir, sem launafólk og fyrirtækin í landinu standa frammi fyrir, að við búum við gjaldmiðil sem lætur stöðugt undan síga. Erlend fjárfesting er ómöguleg á meðan við búum í þessu umhverfi hafta og innlend fjárfesting er mun minni en hún þyrfti að vera.
Ég hef efasemdir um skynsemi þess að taka upp nýjan gjaldmiðil til að ná árangri varðandi aflandskrónueign. Ég held að við getum náð árangri með afslætti á aflandskrónueign með öðrum aðferðum, með útfærslu á skuldabréfaútgáfum, og náð með þeim hætti fram þeim afslætti af aflandskrónueigninni sem nauðsynlegur er til að við getum létt af höftunum.
Eitt verðum við að viðurkenna, núverandi ástand er óboðlegt. Við verðum að komast út úr því og við verðum að gera það hratt. Til þess að auka svigrúm okkar er því mjög mikilvægt að búa til aðferðir sem tryggja að skuldug heimili verði ekki fyrir óbætanlegum áföllum við afnám haftanna. Ef við gerum það aukum við strax svigrúm okkar til þess að grípa til aðgerða og hlutir sem virðast í dag ómögulegir verða skyndilega mögulegir.
Það er líka mjög mikilvægt að við munum að aðferðirnar sem við veljum eiga ekki að leiða til skuldsetningar ríkisins og almennings umfram það sem nú er og ég held að hægt sé á grundvelli víðtækrar samstöðu að ná niðurstöðu um það. Það er síðan alveg ljóst að þegar við höfum afnumið höft mun stöðugleiki krónunnar á mörkuðum og geta okkar til að halda úti gjaldmiðlinum vera í réttu samhengi við þá peningamálastefnu (Forseti hringir.) sem við höfum og við þá tiltrú sem við getum skapað á krónuna. Ekkert er líklegra til að auka tiltrú á krónuna við þær aðstæður en skýr (Forseti hringir.) stefna um upptöku evru í fyllingu tímans.