kreppa krónunnar.
Frú forseti. Við ræðum hér mjög brýnt málefni. Ég vil þakka fyrir það. Aðalmein samfélagsins er skortur á atvinnu. Skortur á atvinnu leiðir til mikils vanda heimila, vanskila og greiðsluerfiðleika og brottflutning fólks. Atvinna myndast við fjárfestingar, en þær eru í lágmarki, m.a. vegna gjaldeyrishafta. Gjaldeyrishöftin er ekki hægt að afnema vegna hinna tíðræddu 1.000 milljarða og gífurlegs magns króna í eigu útlendinga sem heldur vildu eiga gjaldgenga erlenda mynt. Þá mynt þarf atvinnulífið að útvega en getur ekki að óbreyttu. Þess vegna er útilokað að taka upp aðra alþjóðlega mynt á meðan þessi staða er óleyst og við búum við kapphlaup milli eigenda krónanna við að komast út.
Forgangsverkefni okkar hv. þingmanna er að leysa þennan vanda. Ég sé ekki aðra lausn á því en að semja við eigendur þessara króna, sem eru kannski að meginstofni til 20, 30, kannski 50 aðilar. Hagsmunir þeirra fara saman við hagsmuni okkar, þ.e. heilbrigt atvinnulíf sem hvetur til langtímafjárfestingar og eykur útflutning og skapar gjaldeyri þannig að við getum greitt og þeir geta fengið greitt. Það dugar ekki að humma þann vanda fram af sér. Hann er stór og hann fer ekki neitt nema með samningum. Tökum höndum saman allir þingmenn, hv. stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar, og stöndum saman að slíkum samningum við eigendur þeirra 1.000 milljarða króna sem vilja gjarnan fara til útlanda. Þeirra hagsmunir og okkar hagsmunir fara saman og við eigum að nýta okkur það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)