breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarna Benediktssyni fyrir hans ræðu. Hann fór ágætlega yfir það svið sem þingsályktunartillagan gengur út á.
Mig langar til að spyrja þingmanninn hvort honum finnist það ekki athugunarvert að í þingsályktunartillögunni er raunverulega ekki gert ráð fyrir sparnaði við sameiningu ráðuneytanna og beinlínis er tekið fram að ekki sé ætlunin að spara ríkisfé með þessum sameiningum.
Kostnaðaráætlun kom ekki inn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrr en í seinni umr. og þá hljóp sá kostnaður á bilinu 150–250 millj. kr. sem áætlað er í húsnæðiskostnað. Það munar hvorki meira né minna en um 100 millj. kr. á þessum upplýsingum. Ég spyr hv. þingmann hvort honum þyki þetta ekki undarlegt í ljósi þess að hér átti að taka upp vandaðri vinnubrögð og sérstaklega að kostnaðargreina sem flest verkefni sem væru byggð á lögum og þingsályktunartillögum.
Eins langar mig til að spyrja hvort það sé ekki undarlegt að gert sé ráð fyrir því að fækka ráðuneytum og þar með ráðherrum en svo kom það fram í munnlegum málflutningi ýmissa þingmanna að ef fámenn ráðuneyti verða kannski allt of stór þá sé bara hægt að fjölga ráðherrunum innan ráðuneytanna og taka jafnvel upp kerfi aðstoðarráðherra. Hvað finnst þingmanninum um þennan málflutning? Hefði ekki verið betra að þessar hugmyndir hefðu þá komið fram þó væri ekki annað en í greinargerð, ef stjórnarmeirihlutinn hefði haft áhyggjur af því að ráðuneytin yrðu of stór, það væri þá hugsanlega kveðið á um það með skýrum hætti en ekki bara í munnlegum málflutningi formanns og varaformanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.