breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Herra forseti. Það var svo sem ekki nein eiginleg spurning frá hv. þingmanni, en það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að ég fór meðal annars yfir það sem kom fram í ályktun flokksráðs VG á Akureyri og hv. þingmaður tók fram í ræðu sinni.
Það er líka alveg hárrétt að sjávarútvegur og landbúnaður gegna lykilhlutverki í dag og eru gjaldeyrisaflandi og gjaldeyrissparandi greinar. Það er annað sem er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að þetta eru þær atvinnugreinar munu þurfa að taka mestum breytingum verði af aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Það er eitt sem mætti raunar bæta við þetta, það er sú staðreynd og það vita flestir sem eru eldri en tvævetur að þingflokkur Samfylkingarinnar, áður þingflokkur Alþýðuflokksins, hefur auðvitað aldrei verið hliðhollur þeim atvinnugreinum eða viðurkennt mikilvægi þeirra þegar kemur að uppbyggingu byggðar í kringum landið.
Í ljósi þess, eins og hv. þingmaður bendir á, að sú ályktun er enn í gildi hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði um að standa vörð um þessar grunnatvinnugreinar, þá hlýtur að vakna sú spurning hvers vegna forusta VG og hæstv. núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skuli ítrekað gefa eftir gagnvart gamla Alþýðuflokknum þegar kemur að þessum grunnatvinnugreinum þjóðarinnar. Við sjáum það í auðlindagjaldinu, landsbyggðarskattinum, sem nýleg skýrsla sýnir fram á að muni rústa landsbyggðinni.
Svo sjáum við í þessari tillögu að í sjávarútveginum og landbúnaðinum, sem meira að segja flokksráð Vinstri grænna hefur staðið við bakið á, er gefið eftir gagnvart Alþýðuflokknum. Er nema von að margir hafi áhyggjur af því að hugsanlega sé hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að fara að gefa eftir grunngildi, grunnatriði eins og t.d. makrílinn, hvalveiðarnar, tollverndina í landbúnaðinum og svona mætti áfram telja.
Það er grafalvarlegt mál að menn skuli snúa svona baki við grundvallarmálum sem virðist vera (Forseti hringir.) einungis til þess að þjóna gamla Alþýðuflokknum.