breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Herra forseti. Varðandi umræðuna sem hefur farið hér fram um vandaða undirbúningsvinnu til stofnunar svokallaðs atvinnuvegaráðuneytis, þá var boðað til samráðsfunda með hinum ýmsu aðilum atvinnugreina sem heyrðu undir þetta ráðuneyti og áttu þeir aðild að umræðum um þessar breytingar. Það voru Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök fiskvinnslustöðva, Samtök verslunar og þjónustu, Bændasamtökin, Landssamband íslenskra útvegsmanna og fleiri. Og skal það upplýst hér að á þeim fundum, eins og hv. þingmaður kom reyndar inn á með broskallana, og af þeirri skýrslu sem gerð var út frá niðurstöðum þeirra funda, var það alveg heilt í gegn að aðilar sem tengdust bæði sjávarútvegi og landbúnaði voru fullkomlega andvígir áformum um þessar breytingar, töldu að þær mundu veikja stöðu þessara atvinnugreina. Mjög óljóst væri hvernig ætti að fara með stoðþjónustu greinanna og þeir lögðust þess vegna gegn þeim áformum eins og þau voru lögð fram.
Þegar maður lítur á mikilvægi þessara greina og hvernig þær eru byggðar upp verður maður fyrst að raða upp stoðgreinum og stoðstofnunum atvinnugreinanna, Hafrannsóknastofnun, Veiðimálastofnun og slíkri þjónustustarfsemi áður en maður fer síðan í að skipa því upp í ráðuneytunum. Þau eru nokkuð sem eiga síðan að koma sem svona yfirverkstjórar yfir framkvæmdarvaldinu gagnvart þeim stofnunum, stoðþjónustu og þeim verkþáttum sem stjórnsýslan ber ábyrgð á gagnvart þessum atvinnugreinum.
Í þessu máli, og það kom mjög greinilega fram í umsögnum þeirra aðila sem bárust sjávarútvegs- (Forseti hringir.) og landbúnaðarráðuneytinu, að talið var að þarna væri byrjað á öfugum enda. (Forseti hringir.) Ég vil því geta þess hér, herra forseti, að greinargerð vegna þessarar vinnu liggur fyrir og hún segir allt annað en hv. (Forseti hringir.) þingmaður vitnaði til í þeirri skýrslu þar sem verið var að fletta (Forseti hringir.) brosköllum um afstöðuna til þessara mála.
(Forseti (SIJ): Ég vil minna þingmenn á að ræðutíminn er tvær mínútur.)