breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að mér finnst þetta bera vott um ístöðuleysi. Það er alveg rétt, það er verið að henda stofnunum fram og til baka milli ráðuneyta, stofna eitt ráðuneyti í dag og annað á morgun og leggja eitt niður í dag og skipta upp og annað slíkt. Fyrir mér er þetta ágætis lýsing á ístöðuleysi. Það er eins og menn viti ekki alveg hvert þeir stefna.
Ef maður skoðar markmiðin er það náttúrlega sjónarmið út af fyrir sig sem hv. þm. Álfheiður Ingadóttir er með, að þetta sé ekki gert til þess að spara. Það er náttúrlega sjónarmið út af fyrir sig en ég hefði haldið að á þessum síðustu og verstu tímum ættum við að hugsa um að spara sem mest.
Ég er ekki viss um að það að bæta við ráðherrum í ráðuneyti leiði til þess að völd embættismanna minnki eða verði réttara sagt ekki of mikil. Ég er ekki viss um að það sé nægilega gott ráð.
Jafnframt spyr hv. þingmaður mig að því hvort ég geri mér grein fyrir því af hverju er verið að þessu. Ég verð að vera algjörlega hreinskilinn með það að ég hef ekki hugmynd um af hverju er verið að þessu. Ef maður les greinargerðina, sem eru fimm, sex síður, þá er bara alls ekki fjallað um það. Þar eru sett saman orð, sem gætu verið kannski 3 þúsund eða eitthvað svoleiðis, og maður les ekkert sérstaklega mikið út úr þeim hvað er verið að fara með þessu. Ef maður les broskarlaskýrsluna er það alls ekki ljóst heldur. Ég skil ekki af hverju þetta er það forgangsmál sem það virðist vera hjá hæstv. ríkisstjórn, (Forseti hringir.) mér er það gjörsamlega óskiljanlegt.