140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[17:29]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður komi hér að kjarna málsins. Þegar ég kom inn á Alþingi stóð ég í þeirri meiningu að hér væru vinnubrögðin í allt öðrum gæðaflokki en þau reyndust vera. Hér talar hæstv. forsætisráðherra um að alvanalegt sé að mál komi bara eins og á færibandi. Hæstv. sjávarútvegsráðherra talar um að eðlilegt sé að málin komi fram á haustin og veturna og vorin og svo sé uppskorið í lok þings eins og er núna. En hæstv. ráðherra gleymdi að geta þess að það virðist vera búið að breyta röðinni í þeirri landbúnaðarhugsun sem hann var að reyna að lýsa. Maður byrjar ekki á sláturtíðinni á vorin. Maður verður að láta lömbin vaxa yfir sumarið og þeim er slátrað á haustin. Mál eru vanbúin þegar þau koma hér inn, þau fara ekki í eðlilegt umsagnarferli og þróast ekki á eðlilegan hátt heldur er þeim hent inn og þau rifin út. Svo eru menn að kvarta yfir því og tala um almannahagsmuni og annað slíkt þegar við í stjórnarandstöðunni reynum að koma einhverju viti í þetta. Þetta eru náttúrlega ekki þau vinnubrögð sem ég hélt að (Forseti hringir.) væru tíðkuð á Alþingi þegar ég kom inn á Alþingi í maí 2009.