140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[18:34]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ef mönnum er alvara með að ná samkomulagi um dagskrána, ef mönnum er alvara með að það sé brýnt að mál komist til nefnda, þá hljótum við að geta orðið sammála um að fresta umræðunni um 4. dagskrármálið og klára hin 15. Við getum bara hafið aftur umræðu um 4. dagskrármálið að þeim 15 málum loknum, ef hv. stjórnarliðum er einhver alvara með því sem þeir sögðu í morgun. Þá geta menn ekki í samningaviðræðum sagt, hvorki stjórnarandstaðan né stjórnarmeirihlutinn: Ég ætla bara að ráða, þið eigið að fara eftir því. Samningar eru um þetta, það er ágreiningur um 4. mál en menn geta komið sér saman um að afgreiða hin málin. Af hverju í ósköpunum, virðulegur forseti, er það ekki gert?