breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Já, við eigum að vera bjartsýn, segir hv. þingmaður, en við skulum líka sýna sanngirni. Það verður að segjast eins og er að sú vinna sem liggur að baki þessari tillögu er mjög umfangsmikil og mjög vönduð. Það liggja fyrir ítarlegar greiningar eftir m.a. 15 fundi með 19 hagsmunasamtökum þar sem búið er að fara yfir málið og komnar bréflegar yfirlýsingar frá flestum þeim aðilum sem þarna er um að ræða og fyrir liggur greining á afstöðu hagsmunaaðilanna allra, allra saman. Þetta er í fyrsta sinn sem slík vinnubrögð eru viðhöfð.
Ég verð að segja hreint eins og er, hv. þingmaður, að það er eðlilegt að sýna sanngirni og það er ekki rétt eða sanngjarnt að bera vinnubrögðin nú saman við þau fyrir hrun og segja að ekkert hafi breyst. Við höfum sem betur fer lært heilmikið af hruninu. (Forseti hringir.) Vinnubrögðin núna eru til mikilla bóta. Ég segi ekki að þau gætu ekki verið betri, (Forseti hringir.) en þau eru margfalt betri en þau voru fyrir hrun.