140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[21:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Í minnisblaði sem lagt var fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og gerð hefur verið grein fyrir í þessum ræðustól, líklega tvisvar eða þrisvar í umræðunni, kemur fram að kostnaður getur verið á bilinu 125–225 millj. kr. eins og hér var sagt. Stærsti einstaki kostnaðarliðurinn er viðbygging við Skúlagötu 4. Frávik á kostnaðarspönn geta verið nokkur til lækkunar eða hækkunar. Sem dæmi um það nefnir Framkvæmdasýslan möguleika þar sem kostnaðarviðmið er á bilinu 157–182 millj. kr. Þá er þess jafnframt getið að umræddar lausnir taki mislangan tíma í framkvæmd.

Á þessu er tekið í nefndaráliti meiri hlutans og bent á að nauðsynlegt sé að fyrir liggi ítarlegar kostnaðaráætlanir áður en ákveðið er hvaða leið verður farin í þessum efnum.

Hér er um að ræða, eins og margoft hefur komið fram, einskiptisaðgerð sem má líkja við einskiptiskostnaðinn sem var 243 millj. kr. vegna húsnæðiskostnaðar við hin nýju tvö stóru ráðuneyti. Þar aftur á móti á síðasta ári skilaði hagræðingin (Forseti hringir.) 146 millj. kr. á ári. Þannig að einskiptisaðgerðin (Forseti hringir.) meira en borgar sig upp á einu og hálfu ári.