140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[22:31]
Horfa

Ólöf Nordal (S):

Virðulegi forseti. Ítrekað hafa þau vinnubrögð sem verið hafa í þinginu komið til umræðu í dag og kannski ekki síst vegna þeirrar umræðu sem varð í upphafi þingfundar um þingstörfin, áhyggjur þingmanna af þróun mála í dag. Ég ætla ekki að standa í þessari umræðu — hér er á ferðinni mál sem þarf að ræða rækilega, hvernig þessi dagur þróast — að öðru leyti en því að ég held að fram hjá því verði ekki litið, þegar við lítum til starfsemi þingsins, að ekki er endalaust hægt að hafa ágreiningsmál á dagskrá alla daga, að vera stöðugt að setja mál á dagskrá sem vitað er að grundvallarágreiningur er um alls staðar í þinginu, ekki bara á milli stjórnar og stjórnarandstöðu heldur líka mál sem togstreita og núningur er um innan ríkisstjórnarflokka. Það er ekki hægt að halda svona áfram í þinginu missiri eftir missiri, mánuð eftir mánuð og dag eftir dag. Þetta mál er eitt af þessum málum.

Það gerðist í dag, í upphafi þingfundar, að þessi ágreiningur opinberaðist mjög rækilega og þau mál sem hæstv. ríkisstjórn vildi koma til nefndar fyrir nefndadaga — þingmenn stjórnarmeirihlutans höfðu áhyggjur af því að það mundi ekki takast og það er vegna þess að menn hafa kosið að vera með þessi ágreiningsmál stöðugt á dagskrá. Þess vegna fannst mér skipta máli að við sammæltumst um það hér að koma þeim málum til nefndar sem voru á dagskrá þingsins og engin ástæða var til að vera með í löngum umræðum. Það hefði verið gott fyrir þingið að slík niðurstaða fengist í dag að þetta mál hefði verið lagt til hliðar og menn hefðu hafist handa við að koma málum í þingmeðferð þannig að nefndadagar í næstu viku mundu nýtast með einhverjum hætti. Það varð ekki raunin og í stað þess erum við enn með þetta mál á dagskrá og það hefur alltaf verið vitað að um þetta mál vildu menn tala töluvert mikið.

Þetta mál, um Stjórnarráðið, hefur verið í ágreiningi í þinginu um langa hríð. Lengst af var ágreiningurinn vegna stofnunar atvinnuvegaráðuneytis. Við vitum að þar hafa skoðanir manna verið skiptar. Hitt ber þó að nefna að hvað þann þáttinn varðar hafa mjög mörg sjónarmið þegar komið fram. Við vitum að það er gríðarleg óánægja, og ég get jafnvel sagt ótti, hjá þeim atvinnugreinum sem heyra núna undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, menn óttast að í atvinnuvegaráðuneytinu verði þeim málaflokkum ekki eins vel fyrir komið.

Hjá þessum aðilum liggja fyrir umsagnir frá fyrri þingum þannig að segja má að þær skoðanir komi í sjálfu sér ekki á óvart. Ég vil þó taka fram að það er mjög mikið áhyggjuefni í þessari tillögu, hvað varðar skipun auðlindamála, að ekki liggi fyrir hvar höfuðstofnanir eigi að vistast. Það er að mínu viti alveg ófært að í fyrri umr. var ekki hægt að fá skýr svör við því hvar Hafrannsóknastofnun ætti að vera, ein af grundvallarstofnunum okkar í þessu landi — skiptir gríðarlegu máli fyrir þá auðlind sem þar er fjallað um. Í nefndastarfinu sem vægast sagt var snubbótt fengust ekki svör við því heldur, hvað um þá stofnun yrði, hvar henni yrði fyrir komið, hvort hún yrði í atvinnuvegaráðuneyti, nái þessar tillögur fram að ganga, eða í auðlindaráðuneyti. Þetta er grundvallaratriði.

Það er alveg rétt, sem fram kom hjá hv. þm. Valgerði Bjarnadóttur í dag, að skipan Hafrannsóknastofnunar er með lögum. En þegar menn eru að leggja fram þingsályktunartillögu sem flutningsmenn tillögunnar vilja meina að sé stefnumarkandi þá hlýtur það líka að felast í slíkri stefnumörkun að menn viti hvað þeir ætla að gera við grundvallarrannsóknarstofnanir í landinu. Mér finnst það ekki óeðlileg spurning.

Hvað varðar síðan almennt vinnubrögðin í þessu máli hefði ég talið heppilegra, og ég held að ég hafi rakið það í fyrri ræðu minni, að þegar mál koma fram í þeim búningi sem þetta mál er væri skynsamlegra, af þeim sem bera málið uppi, að vanda fremur og lengja umræðuna um það heldur en hafa það í þessum flýti. Við óskuðum eftir því að þessi tillaga fengi meðferð í öðrum nefndum þingsins, í atvinnuveganefnd — það er reyndar það sem ég ætla að verja mestum tíma mínum í, efnahagsmálin — og í efnahags- og viðskiptanefnd. Það var enginn vilji til þess að tillagan færi í slíka meðferð. Það voru að sjálfsögðu engar skriflegar umsagnir sem lágu fyrir nefndinni. Við fengum gesti á fundi nefndarinnar, afskaplega marga gesti í hvert skipti þannig að umræður í nefndinni voru mjög ómarkvissar. Allt er þetta til að draga úr því máli sem hér liggur fyrir.

Síðan verð ég að láta það koma fram að hæstv. forsætisráðherra hefur gert að umtalsefni, bæði í fyrri umr. og eins í dularfullum andsvörum hér áðan, að það þyrfti að láta það koma í ljós hvort ríkisstjórnin hefði meiri hluta fyrir málinu. Það væri sem sé orðið verkefni þingsins að leiða það í ljós í atkvæðagreiðslu hvort það sé ríkisstjórnarmeirihluti í landinu. Forsvarsmaður ríkisstjórnarinnar getur sem sagt ekki upplýst þingheim um að það sé meirihlutaríkisstjórn heldur þurfi bara að kanna það í atkvæðagreiðslu, hverri á fætur annarri væntanlega, hvort ríkisstjórn hafi í það og það skiptið meiri hluta og hverjir það eru sem eru í þeim viðkomandi meiri hluta. Í þessu tiltekna máli liggur það hreint ekki fyrir að ríkisstjórnin hafi meiri hluta. Þvert á móti má frekar draga í efa að í tillögunni eins og hún liggur fyrir hafi stjórnarflokkarnir óskoraðan meiri hluta í þingliði sínu. Þá mundu sumir segja að þetta væri í raun þingmannamál. Hæstv. forsætisráðherra hefur hins vegar gefið til kynna að þingmenn úr öðrum flokkum styðji málið og eins og fram hefur komið í umræðum undanfarið þá virðist það blasa við að þingmenn Hreyfingarinnar í þessu máli, og eflaust í fleiri málum, hafa ákveðið að verða þriðja hjól undir vagni ríkisstjórnarinnar.

Þá langar mig að koma að þeim hluta málsins sem ég vildi helst gera að umtalsefni. Það er nefnilega áhugavert að ræða ítarlega og málefnalega um það hvernig koma á grundvallarmálaflokkum fyrir í Stjórnarráði Íslands. Það er nokkuð sem Alþingi á að hafa skoðanir á og það er eðlilegt að þeir sem koma að grundvallarstjórnskipun hafi skoðun á því hvernig þeim málaflokkum er fyrir komið. Ég hef ekki fengið svör í vinnu nefndarinnar og hef ekki orði vör við það, í þeim umræðum og þeim ræðum, örfáum ræðum reyndar, sem stjórnarþingmenn hafa haldið hér, hvert menn eru að stefna með skipan efnahagsmála.

Í starfi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar var fjallað stuttlega um þær skýrslur sem lagðar voru fram í nefndinni en voru ekki til reiðu í fyrri umr., annars vegar skýrsla sérfræðings um skipan Stjórnarráðsins og síðan vinnuhóps á vegum forsætisráðherra sem var skipaður til að fjalla um skipan efnahags- og viðskiptamála innan Stjórnarráðs Íslands. Þar er fjallað nokkuð um kosti og galla þess hvernig koma eigi efnahagsmálunum fyrir. Þar er meðal annars um það rætt að nauðsynlega þyrfti, ef menn vildu halda áfram með skipan mála sem þá hafði þegar verið stofnað til og á sér reyndar rót að rekja í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að efla efnahags- og viðskiptaráðuneytið til að það gæti betur mætt verkefnum sínum. Síðan væri hægt að flytja málaflokkinn til og þar er meðal annars rætt um fjármálaráðuneytið. En það eru punktar í þessu vinnuskjali sem mér hefði þótt mjög gagnlegt að fara mun ítarlegar í en hér er gert, og veldur því að ég get með engu móti stutt þá þingsályktunartillögu sem hér liggur fyrir, og það eru grundvallarstofnanir sem við erum að tala um. Ég ætla aðeins, með leyfi forseta, að fá að nefna að sem kemur fram um skipan Seðlabanka Íslands.

Í vinnuskjalinu er sérstakur kafli sem heitir Tengsl Seðlabanka Íslands við Stjórnarráðið. Tilefni þess að sá kafli er settur hér fram eru álitamál sem fram hafa komið í starfi þessa vinnuhóps um það hversu heppilegt það sé að Seðlabanki Íslands sé færður undir fjármálaráðuneytið. Það hefur að gera með þau verkefni sem á fjármálaráðuneytinu hvíla og mikilvægi sjálfstæðis Seðlabanka þegar kemur að þeim samhljómi sem þarf að vera milli stjórnar peningamála og ríkisfjármála. Ég vil að það komi skýrt fram að ég tel að það hafi verið einn af þeim verulegu — hvernig er best að orða það, ég held að það sé kannski það sem við þurfum að gera hvað best, það er að auka tengsl og samhæfa betur stjórn peningamála og ríkisfjármála. Ég held að við séum stöðugt að verða meira sannfærð um að það sé nauðsynlegt.

En það eru ákveðnir gallar fólgnir í því að færa Seðlabanka Íslands undir fjármálaráðuneytið ef menn líta alla vega ekki til þeirra álitamála sem þar geta komið upp. Í þessum vinnuhópi er bent á ákveðna þætti og sagt er að það sé þá nauðsynlegt við þessa tilhögun mála að gæta sérstaklega að því, í því regluverki sem snýr að ráðningu Seðlabanka og sjálfstæðis hans, að það sé styrkt enn frekar svo að Seðlabanki geti sinnt hlutverki sínu án þess að hafa ótta af því að það ráðuneyti sem nú er komið yfir Seðlabanka fari með óeðlilegum hætti að blanda sér í ákvarðanir hans. Þetta finnst mér skipta gríðarlega miklu máli. Þetta er atriði sem var mjög lítið rætt og ég get varla sagt að umræður hafi orðið í þessari nefnd, hvað þá að menn hafi tekið einhverja vitræna umræðu um þetta mál.

Ég verð að segja, virðulegi forseti, að mér finnst það reyndar vera afskaplega óburðugt að það skuli hafa dúkkað upp einhvern tíma eftir áramót að gera ætti grundvallarbreytingar á Stjórnarráðinu og síðan hafi ekkert heyrst af því í þinginu fyrr en einhvern tíma um páska — og hér kemur svo tillaga og það á bara að samþykkja hana einn, tveir, þrír. Þessi vinnubrögð eru hreint óþolandi og ekki hægt að halda svona áfram.

Hér er um að ræða efni sem hefði verið mjög áhugavert fyrir þingið að taka einhverja umræðu um og ég held að það sé betra fyrir þingið að gera það frekar en þrasa hér um mál sem litlu skipta. Það er dálítið áhugavert að ræða það hvernig við eigum að koma þessum hlutum fyrir og hvernig við eigum að líta til hlutverks Seðlabanka, hvernig við eigum að líta til stjórnar ríkisfjármála og síðan hvernig við ætlum að haga fjármálamarkaðnum. Ég get upplýst í þessari umræðu að það kom fram í þessari nefnd að menn hafa töluvert miklar áhyggjur af því, sem um það mál véla, að Fjármálaeftirlitið sé fært undir atvinnuvegaráðuneyti. Ég hef bara ekki komið því heim og saman í höfðinu á mér hver tilgangurinn með því er.

Í þeim gögnum sem þó liggja fyrir virðist það vera rauður þráður að heppilegt sé að Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki séu í einhvers konar sambandi. Reyndar er talað um að búið sé að formgera það betur en hann skiptir líka máli þessi þáttur að hann sé einhvers staðar á svipuðu róli í Stjórnarráðinu. Þetta hefur ekki fengist neitt rætt. Seðlabanki Íslands hefur um þetta verulegar athugasemdir og mig undrar það reyndar mjög að það hafi ekki komið skýrar fram í umræðunni.

Hér hefur verið gefið út rit, Framtíðarskipan fjármálakerfisins, sem var skýrsla efnahags- og viðskiptaráðherra til Alþingis þar sem farið er vítt og breitt um skipan fjármálakerfisins. Þessi skýrsla var ekkert rædd í tengslum við þetta mál en hún varpar hins vegar ljósi, virðulegi forseti, á þessa þætti málsins og segir manni líka að kannski væri eðlilegt að menn ræddu þetta heildstætt en væru ekki að vinna þetta hver í sínu horni og stundum, að því er manni virðist, út af einhverjum óskiljanlegum ágreiningi í ríkisstjórn eða einhverjum hlutum sem koma málinu ekkert við.

Á bls. 88 í þessari skýrslu er nokkuð verið að ræða um efnahags- og viðskiptaráðuneytið og um mikilvægi þess, um þá stjórnvöld Fjármálaeftirlit og Seðlabanka, og þar er verið að ræða fjármálastöðugleikaráð sem svona hatt eða stjórnvald þvert á ráðuneyti til að halda betur utan um þann mikilvæga þátt sem þetta er. Það er margt í þessari skýrslu. Mig langar sérstaklega að vekja athygli á þessu af því að það hefur ekkert verið rætt í tengslum við þetta mál, þetta fjármálastöðugleikaráð eða þær pælingar sem þar er að finna, hvað þá heldur hafa menn haft nokkurn tíma til að kynna sér það sem Kaarlo Jännäri er nú að gera og vinna í tengslum við þróun fjármálakerfisins á Íslandi og ætti líka að vera innlegg í þessa umræðu. Niðurstaðan er sú að þetta mál er algerlega óþroskað og sá rökstuðningur sem kallað var eftir við vinnslu málsins er ekki enn kominn fram.

Fyrir utan það að enn þá stendur eftir tímasetning þessara tillagna. Hvernig stendur á því að verið er að leggja fram þessa tillögu í miklum asa án þess að hafa fjallað um þá þætti sem ég hef dregið fram í þessari stuttu ræðu? Og ég hef bara imprað á stærstu atriðunum til að draga fram hvað menn hafa lítið hugsað þetta heildstætt og ekki heldur til lengri tíma. Það á að fara að breyta þessu þegar örfáir mánuðir eru eftir af kjörtímabilinu. Að sjálfsögðu eiga breytingar af þessu tagi að eiga sér stað í upphafi kjörtímabils. Við sjálfstæðismenn höfðum vissulega við það ýmsar athugasemdir þegar breytingar urðu á Stjórnarráði í upphafi kjörtímabils, en það var þó stefnumörkun sem sú ríkisstjórn hafði sett á blað þegar hún kom til valda, að hún vildi gera tilteknar breytingar, hún byrjaði þá að ráðast að einhverju leyti í þær.

Þær breytingar sem hér er að finna eru að verða til undir lok kjörtímabilsins og munu væntanlega ekki koma að fullu til framkvæmda fyrr en þegar þessi ríkisstjórn er að skila umboði sínu til baka til þjóðarinnar. Og hvað er þá líklegt að gerist í framhaldi af því? Það er alveg líklegt að menn vilji fara að gera frekari breytingar á Stjórnarráðinu. Formfesta skiptir líka máli í stjórnsýslunni.

Það er ágætt fyrir okkur þingmenn að brýna það fyrir framkvæmdarvaldinu að um leið og við þurfum að laga stjórnkerfið að breyttum tímum og þeim áföllum sem dunið hafa yfir þá þurfum við líka á ákveðinni formfestu í vinnubrögðum að halda. Þær tillögur og sá rökstuðningur sem er í þessari stuttu þingsályktunartillögu vekja enga von um að slíka formfestu verði að finna, enga von. Mér finnst því miður að málið hafi ekki skýrst með neinum hætti í störfum nefndarinnar. Ég átta mig ekki á því hvaða asi er á því að ljúka þessu máli á þeim mikla hraða sem boðið er upp á.

Ég hafna algerlega þeim orðum hæstv. forsætisráðherra að ljúka þurfi þessu máli hratt og vel, það lá í orðum hennar áðan. Enn er mánuður eftir af þingi. Menn hafa enn tækifæri til að lesa og ígrunda þau gögn sem liggja til grundvallar. Ég vil segja það við hv. þingmenn sem ekki sitja í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, við erum bara níu þar, að fara þarf yfir þó nokkurt efni til að geta tekið afstöðu í málinu. Ég vildi óska þess að þeir þingmenn stjórnarmeirihlutans sem þykjast ætla að fara að greiða atkvæði um þetta mál kynntu sér hvað í þessu felst og veltu því fyrir sér hversu miklu máli það skiptir að framtíð efnahagsmála sé skynsamlega fyrir komið.

Það er ekki gott fyrir þessa mikilvægu málaflokka að vera á flakki milli ráðuneyta. Það er ekki heppilegt að Seðlabanki Íslands fari nú undir þriðja ráðuneytið á mjög stuttum tíma og það er óskiljanlegt að Fjármálaeftirlitið sé að fara undir atvinnuvegaráðuneytið. Það hlýtur að vekja spurningar þegar Seðlabanki Íslands hefur athugasemdir við það fyrirkomulag.

Í gegnum tíðina hefur öðru hverju verið talað um það, og ég veit að það er að einhverju leyti hluti af þeirri vinnu sem á sér stað hér, hvernig koma eigi Fjármálaeftirlitinu fyrir til lengri tíma. Það er þó umræða sem virðist eiga að fá að gerjast. Menn virðast vera sammála um að það þurfi að láta það gerjast hvort Fjármálaeftirlitið eigi að renna inn í Seðlabanka, hvort skipta eigi því upp eða hvað. En það þarf ekki neina gerjun þegar kemur að því að þeytast með efnahagsmálin milli ráðuneyta, þeytast með seðlabanka milli ráðuneyta, og allt á miklum hraða. Ég verð, virðulegi forseti, enn og aftur að lýsa mig mjög andsnúna þessum tillögum.