140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[23:15]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna en ég hef í tvígang haldið ræðu, bæði við fyrri umræðu og seinni umræðu, um þetta mál og spurt ákveðinna spurninga varðandi hlutverk hins nýja umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Hv. þingmaður situr í nefndinni sem hafði þetta mál til meðferðar og ég ætla að athuga hvort hv. þingmaður geti upplýst mig eitthvað frekar um það hvað þetta ráðuneyti á að gera.

Nú er verið að fækka ráðuneytum og eftir þessar breytingar verða þau bara átta. Ég skildi það auðvitað þannig að verið væri að reyna að búa til sterkar einingar sem væru með viðamikil hlutverk. Ef maður les gögnin á þetta ráðuneyti, miðað við tillöguna sjálfa, að hlutast til um mótun og lögfestingu meginreglu umhverfisréttarins og skilgreiningu þeirra viðmiða sem gilda eiga um sjálfbæra nýtingu. Í fyrsta lagi tekur það væntanlega ekki óendanlega mörg ár að vinna það verkefni, ef við eigum að áætla eitthvað í því sambandi, og þarna er verið að búa til heilt ráðuneyti utan um þessi mál.

Í öðru lagi á ráðuneytið að formgera samstarf ráðherra, þ.e. ráðherra umhverfis- og auðlindamála og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Ráðuneytið á að hlutast til um lögfestingu meginreglna og vera í samráði við annað ráðuneyti.

Ég spyr: Er það efni í heilt ráðuneyti eða var það útskýrt frekar í nefndinni? Ég stend á einfaldlega gati, ég skil ekki alveg hvernig mönnum datt þetta í hug miðað við að verið er að fækka ráðuneytum ef þetta snýst í rauninni bara um að lögfesta meginreglur og síðan um samstarf (Forseti hringir.) við annað ráðuneyti.