140. löggjafarþing — 94. fundur,  4. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[00:34]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður bendir á forgangsröðunina hjá hæstv. ríkisstjórn, sem er mjög lýsandi. Hv. þingmenn stjórnarliðsins hafa sakað okkur í stjórnarandstöðunni um að vera að stoppa umfjöllun um mikilvæg mál, nefndu sérstaklega það sem snýr að skuldamálum heimilanna. Þegar þeir fengu síðan tækifæri til að taka þessi mál fram fyrir þannig að við gætum komið þeim til nefnda var enginn áhugi á því, ekki nokkur.

Hv. þingmaður spyr mig mjög erfiðrar spurningar. Hann spyr: Hvað vakir fyrir hæstv. ríkisstjórn? Vanalega þegar maður fer að hugsa hluti eins og þessa þá hugsar maður út frá rökhugsun, að það hljóti að vera eitthvað skynsamlegt á bak við. En við höfum séð að Stjórnarráðið hefur ekki náð sér eftir þær breytingar sem gerðar hafa verið á þessu kjörtímabili, sem að vísu eru ekki litlar. Þær breytingar voru illa ígrundaðar og báru þess merki að fyrst og fremst var um pólitísk hrossakaup að ræða en ekki það að menn ætluðu að bæta starfsumhverfi, bæta stjórnsýsluna og Stjórnarráðið.

Þetta er allt vanreifað, menn hafa ekki hugmynd um hvar stofnanirnar eigi að vera og vita ekkert hvernig þeir eiga að vinna þetta. Í umsögn varðandi kostnaðinn er til dæmis verið að ræða það að byggja þurfi við húsnæði til að koma fólki fyrir í sömu ráðuneytum. Í fyrsta lagi gætu menn verið farnir að vinna eftir þessu upp úr næstu áramótum þannig að þetta er ekki rökrétt.

Virðulegi forseti. Það er tvennt sem kemur til greina, að þetta séu bara hefðbundin pólitísk hrossakaup hjá ríkisstjórnarflokkunum og svo gæti þetta verið eitthvert daður við Evrópusambandið.