140. löggjafarþing — 94. fundur,  4. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[01:42]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mér þykja stjórnarliðar vera að snúa þessu máli á hvolf því að ég veit ekki betur en reynt hafi verið að semja um þetta mál í dag og semja um að önnur mikilvægari mál kæmust á dagskrá. Það er auðsjáanlega mikil andstaða við það mál sem við ræðum hér og það á ekki bara við um stjórnarandstöðuna, a.m.k. tveir þingmenn stjórnarliðsins, fyrrverandi hæstv. ráðherrar, hafa lýst mikilli andstöðu við málið. Málið er vanbúið, það fékk ekki eðlilega umfjöllun í nefnd og það er fullkomlega eðlilegt að þetta mál sé tekið til hliðar og við ræðum önnur mál á dagskránni, eins og hæstv. ríkisstjórn var boðið í dag og hv. þingmönnum stjórnarliðsins. Maður hlýtur að velta því fyrir sér vegna þess að hv. þm. Álfheiður Ingadóttir spurði af hverju menn vildu ekki ræða til að mynda niðurgreiðslu til hitaveitna. Það var boðið í dag að taka það mál á dagskrá en lítið ber á hv. stjórnarþingmönnum. (Forseti hringir.) Því er vel hægt að segja að ríkisstjórnin sjálf og stjórnarliðið séu á engan hátt tilbúin til að semja um nokkurn skapaðan hlut (Forseti hringir.) vegna þess að þar er það bara hnefinn sem gildir.