breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Forseti getur tekið undir það að langt sé liðið á nóttina. Það eru um sex klukkustundir þar til nefndafundir hefjast og þar eru mikilvæg málefni ríkisstjórnarinnar á dagskrá, svo sem sjávarútvegsmálin sem ég veit að eru forgangsmál hjá ríkisstjórninni þannig að menn verða að vera vel undirbúnir fyrir þann fund.
Sömuleiðis hefur forseti tekið eftir því að frá því að hafin var umræða um þetta mál á þessum fundi, fyrir rúmum 14 klukkustundum, hefur mælendaskráin ekki styst. Forseti telur tíma til kominn að fara að ljúka þessu. Menn geta haldið áfram umræðu um þetta mál á morgun.