eftirlitsnefnd um framkvæmd skuldaaðlögunar.
Hæstv. forseti. Í gær héldu áfram að birtast áróðurstengdar og gildishlaðnar yfirlýsingar í greinaskrifum prófessors nokkurs við Háskóla Íslands, en hann birti einar 18 spurningar í Fréttablaðinu. Ég ætla ekki að ræða það við hæstv. ráðherra. Aftur á móti skipaði efnahags- og viðskiptaráðherra eftirlitsnefnd um framkvæmd sérstakrar skuldaaðlögunar og í nefndinni á meðal annars sæti áðurnefndur prófessor. Í lögum um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja kemur fram efnahags- og viðskiptaráðuneytið beri kostnað af störfum nefndarinnar og setji í samráði við hagsmunaaðila henni reglugerð. Nefndin skal meðal annars fylgjast með því að við framkvæmd sérstakra aðgerða sé gætt sanngirni og jafnræðis meðal skuldara og nefndin skuli gæta þagnarskyldu við gerð álita og gæta þess að ekki séu gefnar upplýsingar sem varpa ljósi á hvaða viðskiptavinur eigi í hlut.
Nú vil ég spyrja hæstv ráðherra, þar sem að reglugerðin átti að gilda til 31. desember 2011, hvort hún sé fallin úr gildi. Telur efnahags- og viðskiptaráðherra að nefndarmaður í þessari nefnd geti setið í henni samhliða því að hafa uppi í fjölmiðlum sjónarmið varðandi eignarhald og rekstur einstakra fyrirtækja sem eru til meðferðar samkvæmt lögunum? Telur ráðherrann eðlilegt að prófessorinn hafi í krafti stöðu sinnar sem nefndarmaður, í krafti prófessorsstöðu sinnar eða eftir atvikum í nafni Háskóla Íslands, uppi leiðbeiningar sem meðal annars, eðli málsins samkvæmt, er beint til banka sem undirgangast hin sömu lög um hverjir séu heppilegir eigendur fyrirtækja eða hvernig frjáls félagasamtök koma með mál sín til úrlausnar bankastofnana sem haga starfsemi sinni innan ramma landslaga?
Einnig vil ég beina eftirfarandi spurningu til ráðherra: Hvers vegna hafa Bændasmtökin fyrir vikið þau verkefni með höndum sem prófessorinn hefur ævinlega gert athugasemdir við?
Að lokum: Telur ráðherrann að Bændasamtök Íslands hafi misfarið með opinbert fé með þeim hætti sem prófessorinn, í nafni Háskóla Íslands eða eftir atvikum í krafti stöðu sinnar sem eftirlitsnefndarmaður, lýsir í grein í Fréttablaðinu í gær?