140. löggjafarþing — 95. fundur,  4. maí 2012.

eftirlitsnefnd um framkvæmd skuldaaðlögunar.

[10:41]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég skal svara samkvæmt bestu getu en játa þó að ég er ekki alveg kunnugur því hvernig fór með reglugerð sem tengist starfi eftirlitsnefndarinnar. Ég geri ráð fyrir því, og ætla að leyfa mér að trúa því þangað til annað kemur í ljós, að um leið og tekin var ákvörðun um að framlengja störf nefndarinnar og láta hana halda áfram að fylgjast með framvindunni út þetta ár hafi reglugerðin jafnframt verið framlengd eða að stuðst sé við hana. Nefndin átti sem sagt upphaflega að ljúka störfum á síðasta ári, ef ég man rétt, en síðan var tekin ákvörðun um að hún héldi áfram út þetta ár til að fylgja eftir aðgerðunum sem ekki voru að fullu afstaðnar og hún vinnur væntanlega á sama grunni og áður.

Ég er tregur til að dragast inn í umræður um greinaskrif einstaks fræðimanns í eigin nafni og tengja það við störf hans í þágu stjórnvalda á öðrum vettvangi á meðan ég veit ekki annað en þetta séu tveir aðskildir hlutir sem tengist ekki á nokkurn hátt. Ég þarf að sjá eitthvað um að annað sé á ferðinni áður en ég dregst inn í slíkar umræður. Ég treysti því að sjálfsögðu og trúi að menn haldi hlutverkum sínum aðgreindum í þessum efnum og að sjálfsögðu hafa menn frelsi til að tjá sjónarmið sín í blaðagreinum í eigin nafni þó að þeir sinni jafnframt einhverjum öðrum störfum. Mér finnst að menn eigi að gæta sín áður en þeir gefa sér að það sé á nokkurn hátt eitthvert vandamál eða eitthvað óeðlilegt í sambandi við það.

Eins og hv. fyrirspyrjandi þekkir auðvitað eru sögulegar ástæður fyrir því að Bændasamtökin hafa haft með höndum með vissum hætti stjórnsýsluhlutverk, það tengist samningum milli ríkisvaldsins og bænda og þannig hefur verið um þetta búið um langa hríð. Meðferð eða ráðstöfun hinna opinberu fjármuna samkvæmt samningum sætir að sjálfsögðu endurskoðun og eftirliti af hálfu ríkisins og ég veit ekki til að menn hafi áhyggjur af því að þar hafi ekki allir hlutir verið í lagi, ég hef ekki heyrt um það. En gagnrýnin á hina hliðina hefur eftir því sem ég best veit snúist um það að Bændasamtökin hafi kannski í ársreikningum sínum ekki gert fullnægjandi grein fyrir aðskilnaði þessa og annað í þeim dúr. (Forseti hringir.) Við höfum oft áður rætt þetta hér á þingi og síðan hefur verið farið yfir hvernig með þá hluti er farið þannig að hægt sé að (Forseti hringir.) komast hjá öllum aðfinnslum út af framsetningu þeirra mála.