útvistun opinberra verkefna til Bændasamtakanna.
Frú forseti. Ég beini spurningum til hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna ábendinga sem fram komu í skýrslu Ríkisendurskoðunar um útvistun opinberra verkefna til Bændasamtaka Íslands frá mars 2011.
Tæpir 20 milljarðar renna til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis á fjárlögum 2012 og tæplega 70% af þeirri fjárhæð rennur í gegnum Bændasamtökin til að fjármagna lögbundnar skyldur ríkisins. Þetta vekur ákveðin hugrenningatengsl um ríki í ríkinu. Dytti okkur í hug að fela Læknafélagi Íslands framkvæmd og fjárræði Sjúkratrygginga Íslands og eftirlitshlutverk landlæknis eða að fela Félagi eldri borgara framkvæmd Tryggingastofnunar ríkisins? Nei, það þætti vægast sagt ófullnægjandi stjórnsýsla.
Með fyrirspurn minni geri ég ekki athugasemd við fjárhæðirnar sem renna í málaflokkinn sem slíkar heldur stjórnsýslu landbúnaðarmála á Íslandi og meðferð þess opinbera fjár sem veitt er til málaflokksins. Nokkrar ábendingar komu fram og vil ég spyrja hæstv. ráðherra sérstaklega út í hvernig brugðist hafi verið við ábendingum Ríkisendurskoðunar um að brýnt sé að ráðuneytið hafi frumkvæði að endurskoðun fyrirkomulags á stjórnsýslu landbúnaðarmála og hvort mætt hafi verið óskum Matvælastofnunar um að taka sérstaklega upp stjórnsýslulegt hlutverk sitt í þessum málaflokki. Það kemur skýrt fram í skýrslunni að Matvælastofnun hefur fullan hug á því að taka yfir framkvæmd lögbundinna verkefna sinna og var í raun og veru að biðla til þess að ráðuneytið hæfi slíkar (Forseti hringir.) viðræður. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvernig hefur þessu ábendingum verið fylgt eftir?