140. löggjafarþing — 95. fundur,  4. maí 2012.

endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar.

[10:59]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Mér er ljóst að þessi mál verða ekki leyst átakalaust en hér er um að ræða miklu alvarlegra mál. Hér er verið að tala um svo stóra hagsmuni. Hér er verið að tala um að þessi frumvörp muni leiða til þess að framlegð í sjávarútvegi muni lækka um 40%. Hér er verið að tala um að mörg fyrirtæki sem staðið gætu undir skuldum sínum, jafnvel fyrirtæki sem ættu í erfiðleikum með að standa undir skuldum, mundu geta gert það í framtíðinni ef þau fengju til þess starfsfrið. Hér er verið að tala um að þessi frumvörp muni sjálfstætt kalla fram aukin gjaldþrot í sjávarútvegi og það er það sem er svo alvarlegt í málinu.

Varðandi stjórnarskrárbrotin er hér um að ræða ekki færri en fjórar efnisgreinar stjórnarskrárinnar, þá er ekki bara verið að tala um það sem hæstv. ráðherra nefndi hér heldur ýmsa aðra þætti.

Stóra málið er einfaldlega þetta: Það frumvarp sem nú er verið að leggja fram mun hafa mjög skaðvænleg áhrif á rekstur þeirra fyrirtækja sem nú starfa í sjávarútvegi. 75% úrtaksins í krókaaflamarki fer á hausinn. Helmingur stóru fyrirtækjanna í sjávarútvegi fer á hausinn. (Forseti hringir.) Það getur ekki hafa verið hugmyndin með framlagningu frumvarpsins né heldur því að skattlagningin af meintum arði væri 140%. Í frumvarpinu er talað um (Forseti hringir.) 70% og þess vegna hljóta menn að skoða það. Ég legg áherslu á eitt, þetta snýst ekki bara um veiðigjöldin, þetta eru ekki tæknileg mál, þetta er líka spurningin um aðra þætti (Forseti hringir.) í stóra fiskveiðistjórnarfrumvarpinu, meðal annars 40/60% regluna (Forseti hringir.) sem ég (Forseti hringir.) hef gert grein fyrir.

(Forseti (ÁRJ): Forseti biður hv. þingmenn um að virða tímamörk í þessari umræðu. Ræðutími í síðari umferð er ein mínúta.)