niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Virðulegi forseti. Það mál sem við ræðum hér er afurð þess að hæstv. ríkisstjórn kom saman á Ísafirði fyrir rúmu ári síðan og ákvað að setja á laggirnar starfshóp til að gera tillögur um það hvernig lækka megi húshitunarkostnað á þeim svæðum þar sem hann er sárastur og erfiðastur. Nefndin skilaði áliti síðan í desember. Ég hafði búist við því að í framhaldinu mundi ríkisstjórnin, af því að hún stóð að nefndarskipuninni, leggja fram heildstæðar tillögur sem byggðust á þeim hugmyndum og tillögum sem lagðar voru fram af þessum starfshópi. Þar er í fyrsta lagi lagt til að grundvallarbreyting verði gerð á niðurgreiðslukerfinu og að flutningur og dreifing á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis verði niðurgreiddur að fullu. Komið hefur fram að nú er bara um 67% niðurgreiðsla þannig að það vantar mikið upp á. Þetta mundi kosta um það bil 500 millj. kr. og mundi breyta gríðarlega miklu fyrir þá sem búa á hinum köldu svæðum, um 30–35 þúsund manns. Um 10% landsmanna búa við það óréttmæti og þá miklu áþján sem húshitunarkostnaðurinn er.
Í öðru lagi var lögð fram tillaga að breyttri niðurgreiðslu þannig að gert var ráð fyrir því að það yrði sett á jöfnunargjald á hverja framleidda kWst, ég held að það séu 10 aurar, sem næmi þeim kostnaði sem nauðsynlegur væri á hverjum tíma til að niðurgreiða að fullu flutning og dreifingu raforku til upphitunar húsnæðis. Með öðrum orðum, þetta var mjög ábyrg tillaga. Bæði voru lagðar til útgjaldatillögur og tekjutillögur.
Í þriðja lagi gerði hópurinn nokkrar tillögur sem snúa að frekari jarðvarmaveituuppbyggingu og bættri nýtingu. Þar segir að þar beri hæst að starfshópurinn leggi til að jöfnunargjald verði lagt á hitaveitur svipað og raforkuframleiðslu. Einnig er lagt til að heimilt verði að lengja stofnstyrkjaframlagið sem núna er til staðar, sem ég hygg að sé nú átta ár, upp í tólf ár ef þörf krefur.
Ég gerði þetta atriði sérstaklega að umtalsefni í fyrri ræðu minni um þessi mál. Ég sagði að ég hefði talið það eðlilegt, úr því að ríkisstjórnin treysti sér ekki til annars en að stíga hænuskref í þessu máli, að hún hefði að minnsta kosti tekið með inn í frumvarpið þá tillögu sem nefndin setti fram um að lengja stofnstyrkina upp í 12 ár. Það mundi hafa þau áhrif að margar hitaveitur gætu stækkað dreifiveitusvæði sitt, það mundi hafa sömu virkni og þetta ákvæði þó að það þurfi líka að standa sjálfstætt. Ég mótmæli því ekki, öðru nær. Ég hef talað fyrir því að þetta ákvæði verði sett inn eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, en það væri mjög eðlilegt í því sambandi að þegar málið verður afgreitt frá Alþingi verði stofnstyrkir til 12 ára að lögum.
Ég hef líka lýst því yfir að ég muni leggja það til í atvinnuveganefnd þar sem þetta mál mun væntanlega verða til meðferðar, að nefndin geri breytingu á frumvarpinu sem kveður á um að hægt verði að lengja stofnstyrkjaframlagið í allt að 12 ár ef þörf krefur í samræmi við þær tillögur sem starfshópurinn lagði til.
Ég var sakaður um það í umræðu um fundarstjórn forseta að ég hefði lagst í einhvers konar málþóf í þessu máli. Ég verð að leiðrétta sjálfan mig, ég mun hafa talað í 10 mínútur í þessu máli, mig minnti að það hefði verið korter. Ég sagði þá: Ef þetta er málþóf er það stysta málþóf þingsögunnar hér á landi og ekki bara hér, ég hygg að þetta sé stysta málþóf þingsögunnar þótt víðar væri leitað. Það er fráleitt að ég hafi reynt að tefja fyrir þessi máli. Ég flutti þar efnislega ræðu, benti á ýmsa hluti sem snúa beinlínis að efnisgreinum þessa frumvarps og ætla svo sem ekki að endurtaka það.
Eina gíslatakan í þessu máli er sleifarlag núverandi ríkisstjórnar að hafa ekki getað séð til þess að leggja fram í frumvarpsbúningi þær tillögur sem fyrir liggja um þær húshitunarlækkanir sem starfshópurinn sem ég hef gert að umtalsefni hefur nefnt.
Ég vil nefna annað. Hjá efnahags- og viðskiptanefnd hefur legið frumvarp mánuðum saman sem flutt er af þingmönnum úr öllum flokkum um afnám virðisaukaskatts af varmadælum. Það mundi hafa gríðarlega mikil áhrif til þess að lækka húshitunarkostnað á landsbyggðinni. Mér er það algjörlega hulin ráðgáta hvers vegna málið er sett í gíslingu í nefnd. Það var líka gert á síðasta þingi, þá átti að tefla því fram í einhvers konar hrossakaupum um lyktir þingsins. Það er illt til þess að vita að stjórnarmeirihlutinn skuli taka svona mál sem um er pólitísk samstaða og nota það (Forseti hringir.) í einhvers konar kaupskap um niðurstöðu og lyktir þingsins. Það eru ömurleg vinnubrögð (Forseti hringir.) en segir mikið um þessa ríkisstjórn og ríkisstjórnarmeirihlutann.