140. löggjafarþing — 95. fundur,  4. maí 2012.

atvinnutengd starfsendurhæfing og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða.

735. mál
[15:05]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans góðu framsöguræðu, sem var mjög skýr. Ég held að hér séum við að fara af stað með mjög gott mál og það rímar mjög vel við þá vinnu sem er í gangi í þeim starfshópi sem er að endurskoða almannatryggingalögin þar sem sú pólitík er uppi að mun eðlilegra sé að tala um starfsgetumat en örorkumat, og áherslan er á getuna umfram vangetuna. Þar göngum við svo langt að við höfum verið að ræða hvort ekki ætti að tala sérstaklega um framfærslu og síðan ákveðinn stuðning til þess að sem allra flestir geti verið úti á vinnumarkaði.

Frumvarpið felur í sér mjög góðan og skýran ramma utan um starfsendurhæfingu, en ákveðið efni þarf að vera innan rammans og það er hér mjög skýrt. Það er eitt atriði sem mig langar til að inna hæstv. ráðherra eftir. Nú höfum við verið með tvöfalt kerfi þar sem við höfum verið með VIRK, sem hefur verið sérstaklega öflugt hér á höfuðborgarsvæðinu, og síðan starfsendurhæfingarsjóði úti á landsbyggðinni. Ég velti fyrir mér, þar sem við erum að setja ákveðið gólf, fjöldatakmarkanir, fyrir starfsendurhæfingarsjóði, hvernig hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að það sé algjörlega gulltryggt að starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, og það mikilvæga starf sem þeir vinna, sé unnið af nákvæmlega sama krafti og sömu orku og gert er hér á höfuðborgarsvæðinu.