réttindagæsla fyrir fatlað fólk.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011. Frumvarp þetta var lagt fram samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II með áðurnefndum lögum, en þar kemur fram að ráðherra skuli leggja fram á Alþingi frumvarp til laga þar sem meðal annars eru lögð til ákvæði um nauðsynlegar aðgerðir til að draga úr nauðung við fatlað fólk. Frumvarpið byggir á tillögum starfshóps sem skipaður var af þáverandi félags- tryggingamálaráðherra til að gera tillögur um réttindagæslu fatlaðs fólks og skoða þvingun og valdbeitingu gagnvart fötluðu fólki. Hópurinn skilaði tillögum í mars 2009. Í honum sátu auk fulltrúa ráðherra fulltrúi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtakanna Þroskahjálpar. Frumvarpið var unnið af nefnd sem skipuð var fulltrúum frá velferðarráðuneyti, innanríkisráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Öryrkjabandalagi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp og Geðhjálp.
Í frumvarpinu eru lögð til ákvæði um að öll beiting nauðungar í þjónustu við fatlað fólk sé bönnuð nema í neyðartilvikum eða að fenginni undanþágu frá sérstakri nefnd sem sett verður á fót verði frumvarpið samþykkt. Bannið nær einnig til fjarvöktunar sem fer fram á heimilum fatlaðra einstaklinga.
Í frumvarpinu kemur fram skilgreining á nauðung og eru talin upp tilvik sem teljast til nauðungar. Í frumvarpinu er tæmandi talið í hvaða tilvikum verði heimilt að víkja frá banninu og hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að slík undanþága verði veitt. Skal undanþága aðeins veitt í sérstökum einstaklingsbundnum tilvikum, enda sé tilgangur hennar að koma í veg fyrir að fatlaður einstaklingur valdi sjálfum sér eða öðrum líkamstjóni eða stórfelldu eignatjóni eða til að uppfylla grunnþarfir viðkomandi einstaklings. Í neyðartilvikum verður heimilt að beita nauðung til að koma í veg fyrir yfirvofandi líkamstjón, stórfellt eignatjón eða röskun á almannahagsmunum.
Eins og fyrr segir er gert ráð fyrir að ákvarðanir um undanþágur frá banninu verði teknar af sérstakri nefnd sem skipuð verður samkvæmt ákvæðum frumvarpsins, en þar er einnig að finna ítarlegar reglur um málsmeðferð nefndarinnar, hvaða upplýsingar skuli liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin og til hvaða sjónarmiða skuli líta við mat á beiðnum. Feli beiðni um undanþágu í sér ráðagerð um verulega eða varanlega skerðingu á ferðafrelsi einstaklings skal vísa henni til dómstóla. Þá er einnig lagt til að sett verði á fót teymi sem skipað verði sérfræðingum sem verði þjónustuveitendum til ráðgjafar um aðgerðir sem hægt sé að grípa til í því skyni að draga úr þörf fyrir inngrip og beitingu nauðungar. Reynslan hér á landi og erlendis hefur sýnt að slík ráðgjöf ein og sér dregur umtalsvert úr beitingu nauðungar gagnvart fötluðu fólki. Teyminu er einnig ætlað að veita umsögn um beiðnir um undanþágu frá banni við beitingu nauðungar og fjarvöktunar.
Í frumvarpinu er enn fremur kveðið á um skráningu allra tilvika sem fela í sér nauðung eða fjarvöktun, hvort sem fengið hefur verið leyfi fyrir henni eða ekki. Er sérfræðiteyminu falið að halda utan um allar slíkar tilkynningar.
Hæstv. forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins. Með samþykkt þess verður tryggt að nauðung á þjónustu við fatlað fólk verði ekki beitt nema í algjörum undantekningartilvikum og að hún verði aðeins heimiluð og framkvæmd með hagsmuni hins fatlaða einstaklings að leiðarljósi.
Ég leyfi mér því að leggja til, hæstv. forseti, að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umr.