nauðungarsala, aðför, meðferð einkamála og fjármálafyrirtæki.
Frú forseti. Það frumvarp sem ég mæli hér fyrir er flutt af meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Það felur í sér breytingar á lögum um nauðungarsölu, á lögum um aðför, á lögum um meðferð einkamála og loks á lögum um fjármálafyrirtæki.
Tilurð frumvarpsins er að rekja til þess að efnt var til sérstakrar umræðu í hv. efnahags- og viðskiptanefnd um áhrif þeirra dóma sem fallið hafa og varða gengistryggð lán. Í þeirri umræðu kom fram að til ráðstafana þyrfti að grípa til að verja þá sem stæðu veikir fyrir eftir þá dóma til þess að réttarstaða þeirra væri betri en hún ella mundi vera.
Af því tilefni er í 4. gr. I. kafla frumvarpsins lagt til í fyrsta lagi, og það er kannski aðalatriði þeirrar lagabreytingar, að sýslumaður skuli af sjálfsdáðum gæta þess að uppboðsandvirði verði ekki ráðstafað upp í kröfur sem geta verið umdeildar. Það var rætt í nefndinni að ef til vill mundu ekki margir lenda í þeim hópi, því að sýslumenn gæta jú að jafnaði að slíku, en þetta ákvæði er sett inn í lögin til að koma í veg fyrir það með öllum ráðum, með því að skylda sýslumann til að taka það upp hjá sjálfum sér að gæta hagsmuna skuldara ef svo er að eign hefur verið seld þar sem slíkt lán er á sem umdeilanlegt kann að vera. Eins og vitað er eru til dæmi þess að skuldarar hafi yfirgefið fasteignir sínar, jafnvel flutt á brott og enginn hafi verið til þess að gæta hagsmuna þeirra þá er uppboð fór fram.
Að öðru leyti er í I. kafla frumvarpsins verið að breyta ákvæðum um uppboð á þann veg að nú verður heimilt að auglýsa uppboð á vefjum sýslumanna og það er nú einungis tímanna tákn að það sé tekið upp. Það er gert og flutt í þessu frumvarpi að beiðni innanríkisráðherra.
Að auki hvað varðar nauðungaruppboðin er að lokum fjallað um framlengingu fresta til málshöfðunar en í lögunum er það svo að ef réttur einhvers hefur verið fyrir borð borinn við nauðungarsölu á hann rýmri frest til að höfða mál til þess að gæta réttar síns þar. Í frumvarpinu er fresturinn lengdur varanlega úr þremur mánuðum í sex mánuði en lengdur til bráðabirgða fram til loka ársins 2013 í tólf mánuði.
Í II. kafla frumvarpsins eru gerðar svipaðar breytingar hvað varðar málshöfðunarfresti þannig að hægt verður að höfða mál varanlega í sex mánuði og til bráðabirgða í allt að tólf mánuði til ársloka 2013, ef aðför hefur farið fram í eign þar sem vafi getur leikið á um réttmæti kröfunnar eða réttur manns hefur verið fyrir borð borinn.
Í III. kafla frumvarpsins er fjallað um breytingar á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991. Þar er sett aftur inn í lögin um meðferð einkamála ákvæði um gjafsókn eins og það var fyrir árið 2005. Frumvarp af þessum toga lá fyrir Alþingi þá er efnahags- og viðskiptanefnd fjallaði um þessi mál og það var síðan tekið upp af meiri hluta nefndarinnar og flutt með þessu þingmáli hér. Ástæður þess eru nokkuð einfaldar ef hægt er að segja sem svo. Það var þörf á því að rýmka heimildir til gjafsóknar, þær voru orðnar of þröngar. Það er líka ljóst að margir skuldarar eiga við ofurefli að etja gagnvart fjármálafyrirtækjunum í kjölfar hrunsins, fjárhagserfiðleikar almennings eru miklir og brýn nauðsyn á að rýmka ákvæði laganna þannig að fleiri geti notið gjafsóknar en gerðu það áður.
Í umræðum í efnahags- og viðskiptanefnd var fjallað nokkuð um það hvernig hægt væri að hvetja til þess að niðurstaða fengist um hin umdeildu gengislán sem fyrst. Til þess eru að sjálfsögðu nokkrar leiðir. Ein gæti verið sú að mæla fyrir um flýtimeðferð slíkra mála fyrir dómstólunum. Það liggur hins vegar í valdi dómstólanna að stýra störfum sínum þannig að mál séu tekin fyrir sem brýnt er að leysa úr og þeim er vel treystandi til þess, þannig að ekki var ákveðið að fara sérstaklega í það, eftir að nefndin hafði fengið fulltrúa dómstólaráðs til sín til að fjalla meðal annars um þetta. Hins vegar er mælt fyrir um það í 8. gr. að þeim einstaklingum skuli veitt gjafsókn sem verða stefndu í þeim málum þar sem reynir á gildi gengistryggðu samningana.
Tilurð þessa var sú að í efnahags- og viðskiptanefnd var þetta mál rætt og m.a. kom upp umræða um hvort ekki væri rétt að fjármálafyrirtækin mundu samræma störf sín á þann veg að vinna yrði lögð í að finna út hvað væri umdeilt í þeim málum sem eftir væru, því væri safnað saman, reynt yrði að höfða málin hratt og vel og helst að ljúka niðurstöðu þeirra ef fært væri í haust. Fyrirtækin gerðu þetta, gerðu samkomulag sín í milli og Samkeppniseftirlitið heimilaði þeim að gera það með þeim skilmálum þó að fjármálafyrirtækin hafa ekki heimild til að gera kröfu um málskostnað á hendur skuldara. Eftir stóðu þeir skuldarar sem í þessum málaferlum lenda og 8. gr. frumvarpsins tryggir þeim einstaklingum gjafsókn í héraði og í Hæstarétti í þeim tilteknu málum sem höfðuð eru á grundvelli þessa samkomulags sem Samkeppniseftirlitið blessaði. Þannig er reynt að tryggja að þeir einstaklingar sem í hlut eiga og lenda í þessum málaferlum muni ekki bera neinn kostnað af þeim, þeir verði hvorki dæmdir til greiðslu málskostnaðar tapist málin né þurfi þeir að greiða eigin kostnað, hann skuli greiddur úr ríkissjóði. Allt er þetta gert til að reyna að liðka fyrir því að lausn á þessum málum fáist sem allra, allra fyrst.
Loks var í nefndinni nokkuð mikið fjallað um þá stöðu sem uppi er þegar vörslusvipting á sér stað á grundvelli samninga sem bera með sér eignarréttarfyrirvara eða nokkurs konar leigusamninga. Nokkuð var rætt um hvernig hægt væri að tryggja að bílar og lausafé væri ekki tekið af fólki í skjóli nætur en einhver dæmi höfðu verið rakin um það. Eftir nokkra umræðu var ákveðið að koma þessu þannig fyrir að gera þá breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki að fjármálafyrirtækin þurfi með skýru ákvæði að leita heimildar dómara til að láta slíka vörslusviptingu fara fram, og ef þau brjóti gegn slíku, þ.e. ef fjármálafyrirtækin taka bifreiðar og lausafé í sínar hendur án þess að vera með til þess bærar heimildir, sé hægt að mæla þeim sektir samkvæmt 110. gr. laganna um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
Það var og eðlilega nokkuð rætt í nefndinni hvort þetta mál ætti yfir höfuð heima í efnahags- og viðskiptanefnd af því að það varðar réttarfarsmálefni. Engu að síður var þessi umræða tekin í nefndinni vegna þess að þau málaferli sem standa um gengistryggðu lánin varða bæði efnahag ríkisins, okkur sem þjóð og ég tala nú ekki um einstaklingana ansi miklu og þess vegna taldist vera í lagi að málið hlyti meðhöndlun í efnahags- og viðskiptanefnd. Um þetta tókst nokkuð góð sátt og flytur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar þetta mál.
Að lokum, frú forseti, er það tillaga mín að málinu verði að lokinni umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.