sjúkratryggingar og lyfjalög.
Virðulegi forseti. Tilefni þess frumvarps sem hér liggur fyrir er að breyta fyrirkomulagi á greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði sjúkratryggðra einstaklinga. Í gildandi greiðsluþátttökukerfi greiðir sjúkratryggður einstaklingur hlutfall upp að tilteknu hámarki fyrir hverja lyfjaávísun en ekkert hámark er á lyfjakostnaði einstaklingsins. Í því kerfi sem lagt er til í frumvarpinu er gert ráð fyrir þrepum þannig að sjúkratryggður greiði lyfjakostnað að fullu í fyrsta þrepi og þegar ákveðinni fjárhæð er náð greiði hinn sjúkratryggði hluta af kostnaði en greiðsluþátttaka sjúkratrygginga eykst í þrepum eftir því sem lyfjakostnaður viðkomandi einstaklings eykst. Svo er hægt að fá fulla greiðsluþátttöku sjúkratrygginga þegar lyfjakostnaður hefur náð ákveðinni fjárhæð yfir 12 mánaða tímabil sem ákveðin er í reglugerð. Þetta kerfi hlýtur að vera sanngjarnara og eðlilegra en það sem fyrir er, það miðar að því að koma til móts við þá sem þurfa að bera mikinn lyfjakostnað og að eitt kerfi verði látið ná yfir sem flest lyf. Stefnt er að því að taka inn í kerfið lyf sem ekki hafa verið þar síðustu ár eins og sýklalyf en barnafjölskyldur og langveikir þurfa oft mikið á sýklalyfjum að halda.
Einnig eru lagðar til breytingar á ákvæðum um lyfjagagnagrunn til að tryggja læknum aðgang að lyfjaupplýsingum sjúklinga til að geta rakið lyfjasögu þeirra í þeim tilgangi að auka öryggi, bæta meðferð og sporna við óhóflegri fjöllyfjanotkun. Jafnframt er lagt til að einstaklingar fái aðgang að upplýsingum sem varða þá sjálfa úr lyfjagagnagrunninum.
Nefndin leggur til töluverðar breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er reglugerðarheimild 6. töluliðar 1. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar gerð ítarlegri. Það er lagt til að tiltekið verði í lagaákvæðinu að tímabilið skuli vera 12 mánuðir, lögfest að heimilt sé að veita fulla greiðsluþátttöku þegar ákveðinni fjárhæð er náð yfir 12 mánaða tímabil, ungmenni 18–21 árs og atvinnuleitendur sem þiggja fullar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun njóti sömu greiðsluþátttöku og börn, öryrkjar og aldraðir. Tiltölulega fáir einstaklingar 18–21 árs sem nota mikið af lyfjum fá tryggingu en þeir búa iðulega hjá foreldrum þannig að kostnaðurinn hefur hingað til lent á fjölskyldum þeirra. Það er lögfest að gjald fyrir fyrrnefnda hópa geti aldrei verið hærra en sem nemur 2/3 af gjaldi fyrir almenna sjúkratryggða einstaklinga.
Lögfest er heimild til fullrar greiðsluþátttöku vegna lyfja sem lyfjagreiðslunefnd í samráði við sérfræðinga Landspítala og sjúkratryggingastofnunar hefur merkt að séu leyfisskyld og háð sérstöku gæðaeftirliti, svokölluð S-merkt lyf. Einnig er heimilt að skilgreina fulla greiðsluþátttöku vegna leyfisskyldra lyfja við nánar tilgreind skilyrði, svo sem sérstakt ástand sjúklings eða einstaka læknisfræðilega sérgrein. Þannig er hægt að stýra notkun þessara lyfja að ákveðnu marki.
S-merktu lyfin falla sem sagt ekki undir þetta nýja kerfi við gildistöku en endurskoðun á S-merkingum lyfja stendur til og S-merkt lyf geta í kjölfarið fallið undir kerfið. Þau falla þá í þann flokk sem er leyfisskyldur samkvæmt ákvörðun lyfjagreiðslunefndar í samráði við sérfræðinga Landspítala og sjúkratryggingastofnunar. Þau verða þannig með fulla greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Það er miðað að því að jafna stöðu sjúklinga þannig að allir sem eru í þeirri stöðu að þurfa S-merkt lyf fái þau. Má þar minna á þá umfjöllun að sumar sjúkrastofnanir geti ekki tekið við sjúklingum sem þarfnast S-merktra lyfja þar sem þær ráða ekki við kostnaðinn. Það er algjörlega ólíðandi ástand og þess vegna er lögð til breyting á því.
Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar var lyfjakostnaður ríkisins 17,9 milljarðar 2009 og 16,7 milljarðar 2010. Það er að sjálfsögðu nauðsynlegt að draga úr honum og ráðuneytið fær fjórar ábendingar um það, þ.e. leita leiða til að fá aðgang að stærri mörkuðum, fjölga lyfjum á markaði, skilgreina hvernig meta skuli árangur af heilbrigðiskerfinu og tryggja að útboð leiði ekki til fákeppni.
Þá er einnig í nefndarálitinu talsverð umfjöllun um hreyfiseðla sem hafa mikið verið ræddir sem fyrirbyggjandi ráðstöfun til að draga úr lyfjanotkun. Þannig væri til dæmis hægt að fækka sjúklingum með sykursýki 2 með hreyfingu og breyttu mataræði. Ef tækist að fækka sjúklingum með sykursýki 2 um 10% mundi beinn kostnaður ríkisins lækka um 750 milljónir á ári þannig að við þurfum að fara að horfa talsvert út fyrir kassann. Það er lagt til að tilraunaverkefninu um hreyfiseðla verði haldið áfram.
Þá var talsvert rætt um og ákveðnar breytingar lagðar til um lyfjagreiðslugrunninn og lyfjagagnagrunninn. Breytingartillaga meiri hlutans er að skýrt verði kveðið á um skyldu lyfjabúða til að tengjast lyfjagreiðslugrunninum og nýta upplýsingar úr honum við útreikninga á greiðsluþátttöku. Sjúkratryggðir einstaklingar eiga að hafa aðgang að upplýsingum um eigin lyfjakostnað.
Lyfjagagnagrunnur landlæknis var fyrst skilgreindur í lyfjalögum frá 2003. Það hefur komið í ljós að gagnsemi hans er mun víðtækari en bara að fylgjast með lyfjaávísunum lækna og því er lögð til breyting á tilgangi lyfjagagnagrunnsins þannig að hann verði ekki einungis til að hafa almennt eftirlit með lyfjaávísunum lækna heldur að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga. Enn fremur verði, vegna eftirlits sjúkratryggingastofnunar með lyfjakostnaði ásamt því að nota upplýsingar úr grunninum, gerð áætlun um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu og vísindarannsóknum. Þessar upplýsingar eru að sjálfsögðu ekki persónuauðkennanlegar nema á því sé ótvíræð nauðsyn vegna einstakra eftirlitsaðgerða. Það er breyting sem gerð var í samræmi við ábendingu Persónuverndar. Sambærileg breyting er að aðgangur lækna að upplýsingum verði takmarkaður við þrjú ár.
Svo er lagt til að heimild til töku komugjalds á sjúkrahús verði felld niður. Hún hefur ekki verið notuð og eðlilegt að lagabreytingu þurfi aftur til ef framkvæmdarvaldið hyggst taka upp komugjöld á sjúkrahús.
Hér hef ég farið yfir það helsta. Það er ljóst að við erum bara að stíga ákveðið skref til þess að skoða greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu almennt. Þetta er merkilegur áfangi sem hér getur náðst sem verður vonandi þeim hópi sem sérstaklega er hugsað um, þeim hópi sem hefur háan lyfjakostnað, til mikils ágóða. Ég legg til að þessu máli verði vísað til 3. umr. að lokinni umræðunni hér.