140. löggjafarþing — 96. fundur,  4. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[18:14]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegur forseti. Áður en ég sný mér að ýmsum álitamálum varðandi innihald frumvarpsins verður ekki hjá því komist að segja nokkur orð um málsmeðferðina vegna þess hversu sérkennilega hefur verið haldið á þessu stóra og mikla skipulagsmáli.

Nú hafa menn rætt þetta í dálítinn tíma, reyndar aðallega þingmenn stjórnarandstöðunnar sem út af fyrir sig er óheppilegt, þ.e. að hér skuli ekki verða rökræða milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Ég kem aðeins betur að því síðar. Engu að síður hefur þetta skilað því að ýmsir gallar hafa komið í ljós, sífellt fleiri gallar eftir því sem umræðan hefur staðið lengur. Auðvitað er um að ræða gríðarlega umfangsmikið skipulagslegt atriði um hvernig búið er að stjórn landsins, en engu að síður hafa stjórnarliðar mjög lítið verið tilbúnir að taka þátt í þessari umræðu. Þess í stað hafa menn verið með alls konar glósur í fjölmiðlum um að stjórnarandstaðan væri komin í málþóf í þessu máli. Þetta höfum við reyndar fengið að heyra dálítið oft, ef menn leyfa sér að halda nokkrar ræður um stór mál sem ríkisstjórnin kemur með á síðustu stundu, hleypa þeim ekki undir eins í gegn óræddum, er strax farið að tala um málþóf.

Í þessu máli hefði ég til að mynda ekki getað tekið þátt í umræðunni ef þingmenn hefðu ekki séð ástæðu til þess að fara aðeins yfir málið og reifa það. Ég er nýkominn ásamt fleiri þingmönnum af EFTA-fundum á Akureyri og ef það hefði átt að keyra þetta mál í gegn órætt eins og mér heyrist á sumum að til hafi verið ætlast hefðum við, ég og aðrir þingmenn sem á þessum fundum vorum, ekki getað tekið þátt í umræðunni. Þetta finnst mér lýsa mjög óheppilegu viðhorfi til þingsins. Þegar þingmenn vilja rökræða mál, benda á gallana og jafnvel hugsanlegar lausnir er strax farið að tala um málþóf, menn eiga bara að hætta að tala og afgreiða málið.

Við höfum séð allt of mörg slys verða á þessu kjörtímabili í lagasetningu, einfaldlega vegna þess að málum er skilað inn illa unnum allt of seint og svo eru þau bara keyrð í gegn. Það liggur svo gríðarlega á að keyra þau í gegn vegna þess hversu seint þau komu fram, og vegna þess hversu illa þau voru undirbúin gefst ekki tími til að lagfæra þau sem skyldi. Ég held að það sé óhætt að segja að á þessu kjörtímabili hafi þetta gerst miklu oftar en í gegnum tíðina, a.m.k. undanfarna áratugi. Það er auðvitað, eins og margir hafa rakið, sérstaklega undarlegt í ljósi hástemmdra yfirlýsinga um breytt og bætt vinnubrögð á þinginu. Þetta er allt gert með þessum hætti vegna þess hvernig ríkisstjórnin heldur á málum.

Hér er til umræðu aðeins eitt af mörgum stórum grundvallarmálum, málum sem varða hagsmuni alls samfélagsins og koma inn í þingið á síðustu stundu illa rökstudd, jafnvel með þversagnakenndum rökstuðningi, og ætlast er til að menn bendi ekki einu sinni á það heldur einfaldlega keyri málin í gegn á methraða. Það væri mjög óábyrgt af stjórnarandstöðu að láta slíkt viðgangast. Það er skylda stjórnarandstöðu á hverjum tíma að veita ríkisstjórninni aðhald og þegar hún heldur á málum eins og þessi ríkisstjórn hefur gert aftur og aftur með óvandaðri lagasetningu og illa undirbúinni ber stjórnarandstöðu að bregðast við því og reyna hvað hún getur að leiða ríkisstjórninni það fyrir sjónir að hún verði að breyta vinnubrögðum sínum.

En að innihaldi þingsályktunartillögunnar. Það hefur komið fram í umræðunni, eitt af mörgu sem bent hefur verið á í dag og í gær, hugsanlega kom þetta atriði í ljós aðeins fyrr, að forsætisráðherra sem telur nú alveg bráðnauðsynlegt að hafa stjórn efnahagsmála með einum hætti hélt því fram fyrir ekki svo löngu að það væri alveg bráðnauðsynlegt að hafa stjórn efnahagsmála með allt öðrum hætti og alls ekki eins og hún vill haga málum núna hvað varðar skiptingu milli ráðuneyta. Ég er reyndar á því að það hafi verið mjög óheppilegt að færa efnahagsmálin úr forsætisráðuneytinu til að byrja með. Þó að núverandi hæstv. forsætisráðherra hafi ekki viljað hafa efnahagsmál á sinni könnu einhverra hluta vegna held ég að það sé miklu æskilegra að forsætisráðherra, sá sem fer fyrir ríkisstjórn og leiðir stefnu hennar eða á að reyna að þoka stefnu ríkisstjórnarinnar sem mest áleiðis, hafi efnahagsmálin á sinni könnu eins og verið hefur mjög lengi þangað til núverandi hæstv. forsætisráðherra tók við.

Hvers vegna varð þessi skyndilega stefnubreyting um efnahagsmálin? Við vitum það ekki. Eins og svo margt í þessu skortir mjög á rökstuðninginn og jafnvel þegar rökstuðningur er til staðar stangast hann á við það sem er að finna í sömu skjölum, a.m.k. í rökstuðningi sem sama ríkisstjórn hafði áður haft fram að færa. Skyldi þá engan undra þegar svona er haldið á málum að menn fari að velta fyrir sér hvort þetta hafi með eitthvað allt annað að gera en að gera ráðuneytin betur í stakk búin til að sinna hlutverki sínu. Menn hafa ekki komist hjá því að setja þetta í samhengi við þær kröfur sem Evrópusambandið gerir til ríkisstjórnarinnar og hefur lýst ítrekað í ályktunum og bréfum. Þær breytingar sem hér eru kynntar virðast vera mjög í stíl við það sem þar er verið að fara fram á. Þegar við höfum svo séð þessa ríkisstjórn tilbúna til að beita brögðum, held ég að sé óhætt að segja, til að þoka málum áfram hvað Evrópusambandið varðar, til að uppfylla þau aðlögunarskilyrði sem til er ætlast, er ekki skrýtið að menn skuli velta fyrir sér hvort það sérkennilega mál sem á að keyra hér í gegn svo skömmu fyrir kosningar, þegar ljóst er að þessu verður breytt aftur eftir næstu kosningar, tengist eitthvað kröfum Evrópusambandsins frekar en raunverulegri þörf fyrir skipulagsbreytingar af þeim toga sem mælt er fyrir um í frumvarpinu.

Ef sú er raunin ætti ríkisstjórnin bara að segja það. Þá eru það kannski viss rök í málinu að ríkisstjórnin telji sig þurfa að keyra þetta í gegn þó að þetta taki ekki gildi fyrr en hálfu ári fyrir kosningar vegna þess að hún sé að uppfylla kröfur Evrópusambandsins. Þau geta kannski ekki mætt þar á fundi án þess að vera búin að stíga þetta skref. Það væri í sjálfu sér alveg í samræmi við yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar, a.m.k. hluta hennar, en það að hringla svona með þetta mál og búa stöðugt til nýjar ástæður fyrir því hvers vegna þurfi að breyta lögum um Stjórnarráðið með þessum hætti lítur illa út. Þá færi betur á því að ríkisstjórnin kæmi hreint fram og segði: Við erum að gera þetta vegna þess að við viljum standa okkur í aðlögunarferlinu.

Breytingarnar eru á margan hátt, eins og rætt hefur verið í þessari umræðu, ekki augljóslega til þess fallnar að gera hlutina einfaldari eða skilvirkari. Þær eru svo sannarlega ekki til þess fallnar að auka á sérþekkingu, til að mynda í atvinnuvegaráðuneytinu, þegar menn ætla að skella sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarráðuneyti saman í eitt ráðuneyti og í framhaldinu ná einhverri hagræðingu sem reyndar er ekki búið að sýna fram á hvernig eigi að ná, kannski líklegra að raunin verði kostnaðarauki frekar en hagræðing. Þegar menn móta þá stefnu að setja þetta allt saman í eitt ráðuneyti er með því verið að segja að menn ætli að gefa sérhæfingu að einhverju leyti upp á bátinn nema menn ætli að hafa þetta ráðuneyti þeim mun stærra. Það er þó ekki yfirlýst markmið frumvarpsins, yfirlýst markmið er hagræðing til lengri tíma litið og samþættingaráhrif svo maður noti eitt frasaorðið. Með því er til að mynda ætlast til þess af lögfræðingum sem starfa í þessu ráðuneyti að þeir sinni á víxl samningum um sjávarútvegsmál, iðnað og landbúnað í stað þess, eins og nú er, að ráðuneytin séu með sérfræðinga hvern á sínu sviði. Ég held að það hafi gefist miklu betur en má vænta af svona tilraunastarfsemi.

Ég nefni sem dæmi í því sambandi að árangur Íslendinga í sjávarútvegsmálum í samskiptum við önnur ríki og ríkjabandalög þegar kemur að því að gæta hagsmuna okkar í sjávarútvegsmálum byggist á sérhæfingunni því að Íslendingar hafa lagt mikla áherslu á að sérhæfa sig í sjávarútvegsmálum og réttindum er þeim tengjast og þar af leiðandi staðið vel að vígi þegar kemur að því að semja við miklu stærri þjóðir eða ríkjabandalög. Þar er það sérhæfingin sem hefur skilað okkur árangri.

Á sama hátt held ég að óhætt sé að segja að sérhæfingar sé mjög þörf í iðnaði. Það er mikill vilji til þess meðal fjölmargra fjárfesta, eins og við höfum séð á undanförnum árum, að byggja upp íslenskan iðnað ef hér verða skapaðar aðstæður til slíks. Þá er ég einkum að tala um að hér verði til sæmilegur pólitískur stöðugleiki og skattstefna sem gerir fjárfestingu mögulega og auðvitað næg orkusköpun. Þá er til staðar mjög mikill fyrirliggjandi vilji til að fjárfesta hér í atvinnusköpun.

En viljum við þá ekki að þeir sem halda utan um það, hvort heldur að laða að fjárfesta eða hafa umsjón með því hvernig uppbyggingu er háttað, séu einbeittir í því, séu sérfræðingar á því sviði og með allan hugann við það í stað þess að vera með einhvers konar skúffusamstæðu á hjólum og vera trillað á milli deilda í ráðuneytinu, að sinna landbúnaðarmálum einn daginn og svo komnir í sjávarútvegsmál eða iðnaðinn þann næsta? Ég held að aukin sérhæfing muni reynast vel eins og reynslan sýnir, til að mynda í sjávarútvegsmálum eins og ég nefndi áðan.

Það sem við ættum að hafa að leiðarljósi þegar við ræðum breytingar á Stjórnarráðinu, breytingar á skipulagi ráðuneyta, er að allar breytingarnar miði að því að gera ráðuneytin og undirstofnanir þeirra betur í stakk búnar til að þjónusta almenning, vera í þjónustu við fólk og fyrirtæki svo stofnanir ríkisins hjálpi fólki við að ná árangri og leysa vandamál, séu raunverulegar þjónustustofnanir. Þróunin hefur illu heilli verið sú undanfarin ár að stofnanaveldið og flækjustigið í því öllu er orðið slíkt að það stendur ekki aðeins atvinnulífinu fyrir þrifum, það er ekki aðeins gríðarlega mikil hindrun í þeirri nauðsynlegu atvinnuuppbyggingu sem þarf að eiga sér stað hér heldur kvíðir margt fólk því hreinlega að þurfa að fara í stofnun til að reka þar erindi. Móttökurnar í sumum tilvikum eru þess eðlis vegna þess hversu mikið flækjustigið er orðið að það er ekki til þess fallið að auðvelda fólki lífið. Við þurfum að hjálpa þessum stofnunum að þróast í hina áttina þannig að þær geti verið það sem ég hugsa að langflestir starfsmenn þessara stofnana vilji helst, geti verið í þjónustuhlutverki við almenning frekar en að vera einhvers konar hindrun eða staður sem fólk kvíðir fyrir að mæta á. Leiðarljósið í breytingum á ráðuneytunum ætti að vera að menn ætli sér að gera ráðuneytin og stofnanir þeirra þannig úr garði að þau þjónusti almenning á Íslandi sem best, enda erum við þingmenn og embættismenn í vinnu fyrir almenning. Stundum held ég að fólk gruni að sumir í stjórnmálum og sumir embættismenn líti hinsegin á málið, að almenningur vinni fyrir stjórnmálin eða embættismannakerfið. Þannig má þetta ekki birtast og til að laga það þurfum við að gera ýmsar breytingar á heildarkerfinu. Ég held að það væri miklu æskilegra að einbeita sér að því frekar en þessum tilgangslausu tilfæringum sem nú eru til umræðu, algjörlega tilgangslausum tilfæringum sem munu ekki taka gildi fyrr en hálfu ári fyrir kosningar þegar ljóst er að í beinu framhaldi verður þetta lagað og því breytt aftur.

Til að koma með dálítið innlegg í alla þessa umræðu um sáttfýsi, samstöðu og samvinnu geri ég það að tillögu minni hér að allir flokkar á Alþingi sammælist um að hefja í sameiningu vinnu við breytingar á Stjórnarráði, breytingar á skipulagi ráðuneyta, sem miði að því að auka á sérhæfingu þannig að sérfræðiþekking verði næg til að takast á við þau stóru verkefni sem bíða munu ráðuneyta á næstu missirum og árum og miði að því að ráðuneytin og stofnanir verði í þjónustu við almenning. Ef við gætum sammælst um að hafa þetta tvennt að leiðarljósi, annars vegar að skapa þennan faglega styrk ráðuneytanna, gera þau í stakk búin til að takast á við verkefnin sem ráðuneytin þurfa að sinna tæknilega séð og hins vegar varðandi þjónustuna erum við komin með góðan byrjunarpunkt.

Það er svo mikilvægt þegar svona breytingar eru gerðar að menn séu almennt sammála um þær. Þær þurfa að halda gildi sínu burt séð frá því hverjir eru í ríkisstjórn á hverjum tíma. Við nálgun þessarar ríkisstjórnar hefur mér alltaf þótt mjög undarleg sú tilhneiging að haga sér eins og byltingarstjórn, að ætla að laga alla hluti að eingöngu núverandi valdhöfum, ekki einu sinni allri ríkisstjórninni heldur fyrst og fremst ákveðnum ráðherrum í ríkisstjórninni, skoðunum þeirra á því hvernig heimurinn á að vera, algjörlega án tillits til annarra eða þess hvort breytingarnar geti haldið gildi sínu ef ný ríkisstjórn tekur við völdum. Sjávarútvegsmálin eru auðvitað enn eitt dæmið um þetta þar sem menn ætla að ráðast í allsherjarbreytingar á sjávarútvegskerfinu, ég tala ekki um rammaáætlun sem er sérstaklega til þess ætluð að taka málefni virkjana og náttúruverndar út úr þessu pólitíska karpi og óvissu sem fylgir því hvaða flokkur er í ríkisstjórn hverju sinni og setja þetta í faglegt horf. Jafnvel það var tekið út úr þessu faglega ferli, svo ég noti þann frasa, og sett í byltingarstjórnarform eins og byltingarleiðtogarnir ætli sér að halda völdum um áratugaskeið og þurfi þess vegna ekki að hafa neinar áhyggjur af því hvernig aðrir flokkar eða stjórnmálamenn sjá hlutina fyrir sér til lengri tíma litið. Þetta er ákaflega óæskilegt fyrirkomulag og vegur að einu af grundvallaratriðum réttarríkisins sem er það að það sé sæmileg samfella, óháð því hvaða flokkur er við stjórnvölinn hverju sinni, (Forseti hringir.) að menn þurfi ekki að líta á hverja ríkisstjórn sem byltingarstjórn.