140. löggjafarþing — 96. fundur,  4. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[18:40]
Horfa

Frsm. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og hv. þm. Ólöf Nordal ræddu aðeins áðan um það hvenær og hvernig hugmyndin um sameiningu fjármálaráðuneytis og efnahagsráðuneytis hefði borið að. Ég sá á borðinu hjá mér tilvitnanir í ræðuhöld í þinginu 7. desember og sé ekki betur en þá hafi hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurt hæstv. forsætisráðherra um þessi efni og þar svarar hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta:

„Ég bið hv. þingmann að lesa stjórnarsáttmálann. Í honum segir allt sem segja þarf um hugmyndir að breytingum á ráðuneytum.“

Og svo síðar aftur, með leyfi forseta:

„Ég get talað enn skýrar, ég hef ekki séð nein rök fyrir því að sameina efnahagsráðuneytið og fjármálaráðuneytið. Ég þarf þá að fá mjög sterk fagleg rök fyrir því ef einhverjar breytingar eiga þar að verða. Ég ítreka aftur að ekki hafa verið teknar neinar ákvarðanir um það, hvorki fyrr né nú.“

Þetta var 7. desember sl.