140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

skuldavandi heimilanna.

[10:42]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að vandi er mjög víða hjá heimilum og fyrirtækjum, en enginn getur sagt með sanni að þessi ríkisstjórn hafi ekki unnið að því sleitulaust í þrjú ár að taka á þessum málum. (Gripið fram í: Sleitulaust?) Það sem hefur komið fram núna varðandi vanskil hjá einstaklingum ber að taka alvarlega en ég vitna bara í umboðsmann skuldara sem vill fá greiningu á þessum skuldum og af hvaða toga þær séu, hvort þær séu vegna húsnæðismála eða annars. (Gripið fram í.) Hún talar um að þetta geti verið af ýmsum toga sem þurfi þá að greina.

Þær tölur sem hafa komið frá Creditinfo ríma ekki við upplýsingar sem hafa borist frá fjármálastofnunum en samkvæmt þeim tölum hafa vanskil minnkað. Við þurfum að fara ofan í það og rýna það eins og við höfum verið að gera. Við höfum verið að rýna varðandi skuldir heimilanna hvað þurfi að gera til að taka á skuldavandanum og við höfum komist að þeirri niðurstöðu að það sé miklu meiri greiðsluvandi en skuldavandi. Þess vegna höfum við horft til aðgerða sem geta hjálpað þeim sem eru í mestum greiðsluvanda. Það hefur tekið allt of langan tíma, ég skal viðurkenna það, að koma lánsveðunum í það horf sem þarf að gera. Það hefur verið unnið mjög mikið í þeim málum með lífeyrissjóðunum sem eru mjög erfiðir í samvinnu um þau mál. Þeir telja að þau séu í skilum og horfa til þess að þá geti þeir lítið gert í því að koma í aðgerðir með okkur varðandi lánsveðin. Við ætlum þó ekki að gefast upp við það og ég vona að við sjáum fljótlega niðurstöðu í því máli. Þarna er um 2–3 þús. heimili að ræða og mörg þau mál eru hjá lífeyrissjóðunum. Ég vona að við sjáum einhverjar aðgerðir fljótlega, (Forseti hringir.) ekki síst varðandi lánsveðin og þá sem eru í mestum greiðsluvanda.