umsagnir um rammaáætlun.
Virðulegi forseti. Á síðasta ári komu fram tvær skýrslur, annars vegar frá Landsvirkjun og hins vegar frá nefnd sem ríkisstjórnin skipaði um samræmda orkustefnu á Íslandi. Það má segja að niðurstaða þessara skýrslna hafi verið samhljóma um það hve mikil tækifæri liggja í nýtingu orkuauðlinda landsins. Eftir að ákveðnum virkjanaáföngum er náð er niðurstaða þessara skýrslna að skatttekjur og arðtekjur ríkisins verði á bilinu 120–200 milljarðar þegar kemur vel fram á þriðja áratug þessarar aldar.
Nú höfum við séð tillögu um rammaáætlun frá hæstv. ráðherrum umhverfismála og iðnaðarmála og umsagnir eru farnar að berast um hana. Í skýrslu sem GAMMA sendi frá sér í gær kemur fram að miðað við þær tafir sem munu verða á framkvæmdum samkvæmt þessari tillögu ráðherranna megi áætla að á árunum 2012–2016 verðum við af fjárfestingum vegna flutninga og orkuframleiðslu upp á 120 milljarða, og 150 milljarða vegna fjárfestinga í orkufrekum iðnaði og afleiddum störfum. Þetta eru tæpir 300 milljarðar, virðulegi forseti, og um 5 þús. ársstörf á næstu fjórum árum samkvæmt skýrslu GAMMA. Þetta er staðfest af hæstv. umhverfisráðherra og eru þessi fjögur ár í raun þær tafir sem fylgja þeirri niðurstöðu sem ráðherrarnir komust að í rammaáætlun. Ef við reiknum þetta samkvæmt þeim skýrslum sem ég vitnaði til má reikna með, ef þetta er reiknað frá hinum endanum, að þá geti tjónið verið allt að 800 milljarðar.
Hæstv. forsætisráðherra sagði áðan að forsendur væru rangar í þessari skýrslu. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja hæstv. iðnaðarráðherra: Hvaða forsendur eru rangar í skýrslu GAMMA? Hefur hæstv. ráðherra gert sér grein fyrir afleiðingum í tillögum sínum og hyggst hún bregðast við með einhverjum hætti?
(Forseti (ÁRJ): Forseti biður um hljóð í þingsalnum, að hér sé einn fundur í gangi.)