140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

umsagnir um rammaáætlun.

[11:07]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Við aðstoðarmaður minn höfum haft samband við fyrirtækið GAMMA og spurt út í forsendur þessara niðurstaðna. Auðvitað skipta forsendurnar mestu máli þegar menn draga ályktanir. (Gripið fram í.) Þegar ég spurði GAMMA hvenær þau gerðu ráð fyrir að virkjanir úr neðri hluta Þjórsár yrðu færðar úr biðflokki yfir í nýtingarflokk við sína útreikninga segja þau: Við getum ekki tjáð okkur um það.

Ég fullyrði hér að þessi niðurstaða er byggð á veikum grunni.

Það er mikil umframorka til í kerfinu nú þegar sem ekki hefur tekist að selja. Landsvirkjun hefur sem kunnugt er ekki tekist að selja orku frá norðaustursvæðinu þótt margir hafi lýst yfir áhuga og séu í viðræðum við félagið. GAMMA tekur ekki til hvenær þau reikna með að orkan úr neðri hluta Þjórsár seljist og (Forseti hringir.) ekki heldur hvenær þau gera ráð fyrir að virkjanirnar verði færðar úr biðflokki.

Virðulegi forseti. (Gripið fram í.) Sú niðurstaða sem fyrirtækið GAMMA kemst að er byggð á veikum grunni (Forseti hringir.) og er ekki í takt við raunveruleikann.