140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

sjúkratryggingar og lyfjalög.

256. mál
[11:24]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég vil geta þess vegna atkvæðagreiðslunnar áðan að í 2. gr. er einmitt verið að færa úr reglugerð í lög öll veigamestu atriðin sem snerta réttindi sjúklinga gagnvart lyfjakostnaði. En nú greiðum við atkvæði um breytingar á lyfjagagnagrunni landlæknis. Hann hefur hingað til verið til þess ætlaður fyrst og fremst að fylgjast með lyfjaávísunum lækna. Nú er verið að útvíkka tilgang lyfjagagnagrunnsins þannig að læknar geti fengið upplýsingar um lyfjasögu sjúklinga sinna allt að þrjú ár aftur í tímann og enn fremur að sjúklingar geti fengið upplýsingar um það hverjir hafa farið inn í lyfjagagnagrunninn til að athuga upplýsingar um þá sjálfa. Auk þess eru settar styrkari stoðir undir aðgang annarra sem hingað til hafa haft aðgang að lyfjagagnagrunninum, þar á meðal til rannsókna.

Ég segi já.