málefni Íbúðalánasjóðs.
Virðulegi forseti. Ég þakka frummælanda, hv. þm. Ásbirni Óttarssyni, kærlega fyrir að taka upp þetta mikilvæga mál á Alþingi. Íbúðalánasjóður hefur gegnt veigamiklu hlutverki á húsnæðismarkaði og við framsóknarmenn höfum staðið vörð um sjóðinn og lagt mikla áherslu á þetta hlutverk hans. Við teljum mikilvægt að við tryggjum það að sjóðurinn geti áfram gegnt hlutverki sínu á Íslandi hvað varðar húsnæðismálin. Það sem við leggjum hins vegar áherslu á nú er að við þurfum að tryggja raunverulegt val um búsetuform þannig að allir landsmenn geti búið við öryggi í húsnæðismálum. Lykillinn að því er að auka fjölbreytni búsetuforma.
Frumvarp er nú í þinginu þar sem komið er til móts við ábendingar frá ESA um hlutverk Íbúðalánasjóðs og þá áherslu sem lögð er á að sjóðurinn einbeiti sér fyrst og fremst að sínu félagslega hlutverki. Undir það get ég tekið. Hins vegar skiptir líka máli að virða það lykilhlutverk sem sjóðurinn hefur við það að byggja upp þessa fjölbreytni á húsnæðismarkaðnum. Við beittum sjóðnum með ágætisárangri hvað varðar séreignarstefnuna og ég held að að sama skapi sé hægt að beita sjóðnum af miklum krafti í því að byggja upp fjölbreyttan húsnæðismarkað. Þess vegna vil ég nefna nokkur frumvörp sem eru í þinginu og ég er 1. flutningsmaður að sem við þurfum að afgreiða til að bæta úr hvað þetta varðar og styðja við sjóðinn. Það er meðal annars að aflétta stimpilgjöldum, innleiða skattaívilnanir vegna húsnæðissparnaðar og búa til hagstæðara skattumhverfi fyrir (Forseti hringir.) hagnaðarlausa starfsemi, þ.e. leigufélög og húsnæðissamvinnufélög. Þar með gætum við ekki bara stutt það með lánum frá (Forseti hringir.) Íbúðalánasjóði heldur líka með því að tryggja að starfsumhverfi þessara (Forseti hringir.) félaga sé sem allra hagkvæmast.