140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

málefni Íbúðalánasjóðs.

[11:42]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Frú forseti. Við ræðum hér málefni Íbúðalánasjóðs sem er fyllilega tímabært. Mjög ítarleg opinber rannsókn á starfsemi sjóðsins hefur staðið yfir fyrir undanfarið tíu ára tímabil og er það vel. Íbúðalánasjóður hefur tapað gríðarlegum fjármunum og kostað ríkissjóð tugi milljarða króna á undanförnum árum. Að hluta til, en eingöngu að hluta til, er það vegna hrunsins en aðallega er það vegna rangra ákvarðana stjórnar og stjórnenda sjóðsins við breytingar á fjármögnun hans og upptöku HFF-bréfakerfisins árið 2004.

Nýjustu fréttir eru þær að það er búið að skipa enn einu sinni tvo pólitíska varðhunda í stjórn Íbúðalánasjóðs, nú tvo fyrrverandi þingmenn Samfylkingarinnar. Leikurinn heldur áfram. Þrátt fyrir að það kosti tugi milljarða er ekki tekist á við það að virkilega þurfi að skipa fagfólk í stjórn og sem stjórnendur Íbúðalánasjóðs. Íbúðalánasjóður er einhver stærsta fjármálastofnun landsins og skiptir efnahagslífið og allar fjölskyldur í landinu alveg gríðarlega miklu máli. Það er óþolandi að stjórnmálaflokkar á Íslandi skuli fara með þessa stofnun eins og hvert annað flokksapparat. Það þarf að ráða fagfólk í stjórn Íbúðalánasjóðs, það þarf að ráða fagfólk sem stjórnendur Íbúðalánasjóðs en ekki fyrrverandi ráðherra sem framkvæmdastjóra eða forstjóra. Það þarf að ráða fólk úr bankageiranum og á kjörum bankamanna frekar en ríkisstarfsmenn úr flokksskrám stjórnarflokkanna eins og verið hefur alveg frá stofnun sjóðsins 1. janúar 1999.

Vonandi mun rannsóknin sem nú er í gangi á Íbúðalánasjóði leiða í ljós þá misbresti sem verið hafa í rekstri sjóðsins undanfarin ár og vonandi mun hæstv. velferðarráðherra nota það tækifæri til að endurhugsa það hvernig ráðið er í þessar gríðarlega mikilvægu stöður hjá Íbúðalánasjóði.