140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

málefni Íbúðalánasjóðs.

[11:54]
Horfa

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg):

Forseti. Eins og aðrir þakka ég málshefjanda fyrir að hafa frumkvæði að þessari mikilvægu umræðu. Mig langar í byrjun máls míns að taka sérstaklega fyrir einn punkt sem hv. þm. Ásbjörn Óttarsson kom inn á, meint samkeppnissjónarmið. Það er mikið umhugsunarefni þegar meint samkeppnissjónarmið ganga þvert gegn samfélagssjónarmiðum, sjónarmiðum og hagsmunum samfélagsins. Það er einmitt það sem birtist hér að vissu leyti þegar það blasir við að það er í þágu samfélagsins að nýta allar leiðir til að efla og styrkja og mæta þeirri þörf sem fyrir er til að efla leigumarkaðinn. Það blasir við að þar liggja hagsmunir samfélagsins og borgaranna og þá ber okkur skylda til að taka hagsmuni samfélagsins fram fyrir meint samkeppnissjónarmið sem eru reyndar á ýmsan hátt hæpin eins og kom fram í máli hv. þingmanns. Ég ætla ekki að fara út í ESA og kröfur þeirra og önnur sjónarmið sem á margan hátt hafa reynt að vega að grundvelli Íbúðalánasjóðs að mínu mati.

Mig langar hins vegar að koma inn á annað sem hér hefur ekki verið mikið rætt, skuldamál heimilanna. Eins og við vitum öll var illu heilli ekki fallist á almenna niðurfærsluleið á sínum tíma heldur farið í sértæk úrræði. Það er alvarlegt þegar þessi sértæku úrræði eru framkvæmd með mismunandi hætti. Þar hefur til dæmis Íbúðalánasjóður hagað sér að mínu mati með gagnrýniverðum hætti þar sem hann hefur ekki fylgt reglum sem eru hagstæðar fyrir lántakendur, heldur þvert á móti.

Það er þörf á mun lengri umræðu um fjárhag Íbúðalánasjóðs. Það eru skatthirslur samfélags okkar (Forseti hringir.) sem þarf að fara í en — ég ætlaði að segja miklu meira en vil bara segja, út af því að hér hefur ekki verið komið inn á það sérstaklega, að það þarf að samræma þessar reglur og þar ber Íbúðalánasjóður (Forseti hringir.) sína ábyrgð.