140. löggjafarþing — 97. fundur,  10. maí 2012.

málefni Íbúðalánasjóðs.

[11:57]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Það er aðallega tvennt sem mig langar til að koma inn á. Það er mjög þarft að ræða um leigumarkaðinn. Það sem ég hef pínulitlar áhyggjur af og langaði að spyrja ráðherra er: Standast ákvæði nýrra laga um Íbúðalánasjóð ákvæði EES-samningsins þegar kemur að áformum um að búa til leigufélag á vegum sjóðsins? Það eru til félög, eins og Búseti, sem eru ekki á þessum markaði til að hagnast og þau hafa boðið upp á úrræði eins og kaupleigu. Er ekki skynsamlegra að félög eins og Búseti yfirtaki þessa starfsemi í staðinn fyrir að búa til sérstakt leigufélag til bráðabirgða hjá Íbúðalánasjóði sem er jafnvel möguleiki á að standist ekki EES? Nóg eru nú vandræðin varðandi EES-samninginn og Íbúðalánasjóð.

Síðan langaði mig líka aðeins að ræða um áhyggjur mínar af óverðtryggðu lánunum og þeirri staðreynd að Íbúðalánasjóður býður ekki upp á slíkt. Ég hef heyrt röksemdina. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að það er ekkert þak á þessu. Ég fagna því samt að það sé kominn þessi valkostur fyrir þá sem vilja taka lán á íbúðamarkaði. Á að búa til markað á Íslandi þar sem fólk rokkar fram og til baka á milli lánastofnana án þess til dæmis að búið sé að taka á uppgreiðsluskilmálunum? Mér finnst við einhvern veginn ekki enn vera komin með skýra stefnu um húsnæðismálin og á sama tíma er endalaust verið í bútasaumi.

Ég skora á að við förum að setja kraft í að finna heildstæðar lausnir til framtíðar þannig að hægt sé að hafa hér fjölbreytt búsetuform og ég fagna þeim tillögum sem hv. þm. Lúðvík Geirsson ætlar að leggja fram. Það er mjög mikilvægt.