breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður sagði. Það er auðvitað þannig að þegar verið er að gera uppstokkanir í Stjórnarráðinu skapast óróleiki, það skapast óvissa. Þetta er ekki bara bundið við Stjórnarráðið, þetta er líka bundið við þær stofnanir sem heyra undir viðkomandi ráðuneyti. Ég þekki þetta meðal annars af reynslu sem ég gekk í gegnum sem ráðherra þegar verið var að sameina tvö veigamikil ráðuneyti sem á margan hátt voru samt ólík að gerð og líka stofnanaumhverfið í kringum þetta sem ég gerði aðeins að umtalsefni sem líka skiptir gríðarlega miklu máli. Þetta skulum við síðan setja í samhengi við annað.
Það hefur verið mjög mikið álag víðast hvar í stjórnsýslunni undanfarin ár. Verkefnin hafa verið mikil og enn fremur fór hæstv. ríkisstjórn í mikinn leiðangur eins og við munum á árinu 2009 sem var Evrópusambandsleiðangurinn. Það þekkja allir, t.d. í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, að þar hefur verið gríðarlega mikið álag. Þetta fólk hefur þurft, meðfram sínum hefðbundnu daglegu störfum, að taka þátt í margs konar vinnu varðandi Evrópusambandið. Ekki hefur verið bætt í starfsmannafjöldann til að mæta þessu, eingöngu hefur verið gert ráð fyrir að menn gætu unnið þetta meira og minna samfara öðrum störfum, og nú bætist þetta við.
Talað er um að gera þurfi stjórnsýsluna virkari, samhæfðari o.s.frv. Ég fullyrði að það sem mun gerast á næstu vikum, mánuðum og missirum, ef þetta verður ákveðið fyrir þinglokin núna, er að stjórnsýslan verður miklu ómarkvissari, það er ekki spurning. Það er miklu meiri hætta á að ýmislegt sem menn vildu gera með skipulegum hætti verði ekki gert með skipulegum hætti. Með öðrum orðum, það geta orðið alls konar slys sem þyrftu ekki að verða ef menn væru ekki að hræra í þessu.
Ég skil vel að menn vilji setja mark sitt á skipan ráðuneyta í upphafi kjörtímabils og þá ættu menn að gera það með eðlilegum hætti en ekki nánast í bláendann á kjörtímabilinu. Það er algjör (Forseti hringir.) fásinna.