140. löggjafarþing — 97. fundur, 10. maí 2012.
samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu 2012.
696. mál
Frú forseti. Mér finnst gott og líkar vel við það að menn geri samninga við Færeyinga sem heimili þeim að veiða fisk í íslenskri lögsögu. Þeir sýndu okkur það vinarbragð í sambandi við Icesave að þeir voru eina þjóðin sem lánaði okkur í kreppunni miklu, hruninu, án þess að gera skilyrði um að við samþykktum Icesave. (Gripið fram í: Pólverjar.)