störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir með hv. þm. Lilju Mósesdóttur og lýsa yfir vonbrigðum mínum með að lífeyrissjóðirnir skuli ekki taka þátt í aðgerðum ríkisvaldsins til að reyna að bregðast við vanda þeirra sem hafa lánsveð. Þær fréttir sem berast úr þeim herbúðum eru mikil vonbrigði, að þeir skuli ekki koma með okkur að leysa þann vanda.
Í öðru lagi vil ég segja, virðulegi forseti, að það er ljóst að mikil uppbygging er fram undan í íslensku samfélagi. Við sjáum það hvað best á þeim fréttum sem berast ofan úr Grafarholti, en DV greinir til dæmis frá því í dag að Íslendingar hafi keypt fyrir um milljarð kr. í Bauhaus, nýrri byggingarvöruverslun, í þeirri viku sem sú verslun hefur verið opin. Það er ánægjulegt að það sé meira að segja byggingarvöruverslun sem landsmenn hafa tekið svo hressilega vel við.
Við sjáum það líka í nýrri hagspá Arion banka að hagur vænkandi fer. Arion spáir því að hagvöxtur næstu þriggja ára verði þó nokkuð mikið meiri en Hagstofan hafði áður spáð, tæplega 3% á þessu ári, tæplega 4% á næsta ári og svo 3,5% á árinu 2014. Við sjáum sömuleiðis að aukning í fjárfestingum er þó nokkuð meiri en Hagstofan hafði áður spáð, eða um 27% á næstu tveimur árum, en áður hafði Hagstofan spáð 16% aukningu í fjárfestingu.
En Arion banki er svartsýnn á verðbólguna sem stýrist af lækkandi gengi krónunnar. Enn og aftur er öllum ljóst að helsti skaðvaldur íslenskra heimila og fyrirtækja er gengi krónunnar. Við sjáum að verðbólgan kemur til með að verða meiri á næstu þremur árum en áður hefur verið spáð og skýringarinnar er fyrst og fremst að leita í lækkandi gengi krónunnar. Helsti skaðvaldur íslenskra heimila og fyrirtækja er krónan og sá verðbólguvandi sem hún skapar í gengi sínu gagnvart erlendum myntum. Það kallar enn og aftur á mikilvægi þess að hér á þessum vettvangi verði aðildarferlinu lokið (Forseti hringir.) og þjóðin fái að taka afstöðu til þess hvort hún vilji ganga í Evrópusambandið og taka upp nýja mynt. (VigH: Þjóðin segir nei.)