störf þingsins.
Frú forseti. Hv. atvinnuveganefnd hefur nú til meðferðar viðamikið mál sem snýr að stjórn fiskveiða. Það hefur verið mikill skóli að sitja þá um það bil 15 fundi sem nú þegar hafa verið haldnir í nefndinni varðandi þetta mikla mál og margir fundir eftir.
Nefndin hefur kallað á sinn fund marga hagsmunaaðila, sveitarfélög og fleiri aðila til að máta þessi frumvörp við veruleikann, eins og ég hef komist að orði, og það er einmitt starf nefndarinnar að gera það. Hér þurfum við á meiri og lengri sátt inn í framtíðina að halda fremur en styttri og minni sátt og þess vegna þurfa ef til vill allir að gefa eitthvað eftir af hugsjónum sínum og skoðunum í þessu efni til að ná slíkri sátt fram.
Í þessu efni ber að horfa til þess hvað stjórnmálaflokkarnir hafa lagt til málanna í þessu efni. (Gripið fram í.) Ég sé ekki betur en að flestir ef ekki allir flokkar séu á því að þessi auðlind eigi að vera í eigu þjóðarinnar um aldur og ævi. Ég vil að minnsta kosti fá þá stjórnmálamenn sem eru á móti því hingað upp í pontu. Ég heyri ekki betur en allir flokkar séu á því að taka eigi upp einhvers konar auðlindarentu til að þjóðin njóti umframhagnaðarins í þessari grein. Ég vil að minnsta kosti fá þá stjórnmálamenn upp í pontu sem eru á móti því. Ég heyri ekki betur en allir flokkar séu á því að það skuli vera tveir flokkar í þessu kerfi inn í framtíðina. Ég vil að minnsta kosti fá þá stjórnmálamenn upp í pontu sem eru á móti þeirri leið. Ég vil líka fá þá stjórnmálamenn upp í pontu sem eru á móti því að hafa fast gjald. Ég trúi því að stjórnmálaflokkarnir séu að meginhluta í grundvallaratriðum sammála um hvaða leiðir eigi að fara í þessu efni. Við getum tekist á um hlutföllin en (Forseti hringir.) aðalatriðin eru augljós og þar eru menn meira og minna á sömu blaðsíðu.