140. löggjafarþing — 98. fundur,  11. maí 2012.

fjármálafyrirtæki.

762. mál
[12:16]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta lagar ekki nema annan enda málsins, þ.e. áhættusama eign þannig að sparisjóðurinn geti auðveldlega farið á hausinn. En það lagar ekki hinn endann, ef einhver sparisjóður leggur inn innstæðu sem hann má eiga í banka og bankinn lánar síðan einhverju fyrirtæki eða einstaklingi til kaupa á stofnbréfum og stofnbréfin eru eign, eigið fé sparisjóðsins, innlánin eru líka eign, þannig að það sem gerist hjá sparisjóðnum er að eigið fé hans vex með þessari aðgerð. Ég vil spyrja: Er þetta enn þá mögulegt?

Síðan vildi ég spyrja um d-liðinn — og þetta hef ég svo sem margoft bent á — á síðu 2, Viðskipti með hluti í sparisjóði. Hver ákveður eftir hvaða reglum Fjármálaeftirlitið á að fara þegar það samþykkir reglur um viðskipti með hluti í sparisjóðnum eða stofnfjárbréfum?