140. löggjafarþing — 98. fundur,  11. maí 2012.

brottfall ýmissa laga.

382. mál
[17:57]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um brottfall ýmissa laga á sviði fræðslumála.

Allsherjar- og menntamálanefnd hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund Agnesi Guðjónsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneyti. Einnig bárust umsagnir frá Kennarasambandi Íslands, Landgræðslu ríkisins og Listaháskólanum.

Með frumvarpinu er lagt til að nokkrir lagabálkar verði felldir brott úr lagasafninu en við undirbúning frumvarps til nýrra laga um Stjórnarráð Íslands kom í ljós að láðst hafði að leggja til brottfall þeirra. Hér er um að ræða, virðulegur forseti, lög um Myndlista- og handíðaskóla Íslands, lög um Leiklistarskóla Íslands, lög um landgræðslustörf skólafólks og lög um byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir börn.

Um ástæður þessa má nefna að Listaháskóli Íslands yfirtók starfsemi og eignir Myndlista- og handíðaskólans 5. maí 1999 og varð skólinn að sérstakri myndlistar- og hönnunardeild Listaháskóla Íslands 1. ágúst 1999. 1. ágúst árið 2000 var Leiklistarskóli Íslands samtengdur Listaháskóla Íslands og yfirtók Listaháskólinn starfsemi og eignir Leiklistarskólans samkvæmt samningi. Þá er einnig talið, virðulegur forseti, að lög um landgræðslustörf skólafólks samrýmist hvorki því skólaumhverfi né réttindahugmyndum sem eiga við í dag en í lögunum er meðal annars kveðið á um að heimilt sé að kveðja börn 12 ára og eldri, hraust og ófötluð, er stunda nám við skóla sem kostaður er af ríkinu til að starfa við landgræðslu. Að lokum má nefna að lög um leikskóla leysa af hólmi lög um byggingu og rekstur dagvistarheimila.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu að lögin öðlist þegar gildi en í frumvarpinu er kveðið á um að þau taki gildi 1. janúar 2012.

Skúli Helgason, Þráinn Bertelsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir og Þuríður Backman voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

„5. gr. orðist svo: Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Undir nefndarálitið skrifa, auk þeirrar sem hér stendur, Björgvin G. Sigurðsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Eygló Harðardóttir og Birgitta Jónsdóttir.