140. löggjafarþing — 99. fundur,  15. maí 2012.

lánsveð.

[13:58]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Vandi heimilanna hefur margoft verið ræddur úr þessum ræðustól og einn mesti vandinn þar eru lánsveð þar sem menn hafa lánað veð í eign sinni, oft til barna sinna, og eru sumir hverjir eignamenn.

Nú hefur hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, sagt á ruv.is að hann gagnrýni lífeyrissjóðina fyrir að beita stjórnarskránni fyrir sig hvað það varðar að færa niður lán. Í 72. gr., og í 13. gr. nýrra draga að stjórnarskrá, stendur að eignarrétturinn sé friðhelgur og að stjórnarskránni höfum við hv. þingmenn svarið eið.

Nú er spurning mín til hæstv. ráðherra: Er réttlátt að taka eign frá lífeyrisþegum og færa til þeirra sem hafa lánað veð í eignum sínum, sem margir eru eignamenn, og brjóta þannig eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar?

Hæstv. ráðherra segir líka:

„Auðvitað geta allir sett í hælana og sagt „ég get þetta ekki svona og stjórnarskráin bannar hitt og svo framvegis …“ — Er hann að segja að við eigum ekki að meta stjórnarskrána mikils? Og hvað segja hv. þingmenn Hreyfingarinnar, sem leggja svo mikla áherslu á að koma með nýja stjórnarskrá, við því ef ekki á að fara eftir stjórnarskránni?

Ég hef líka margoft bent á að allar álögur á lífeyrissjóðina lenda bara á almennu lífeyrissjóðunum vegna þess að réttindi opinberra starfsmanna eru tryggð. Allar álögur á opinberu lífeyrissjóðina þýða bara hærra iðgjald eða greiðslu ríkisins og opinberra aðila til opinberu sjóðanna þannig að allar álögur lenda bara á almennu sjóðunum.

Hugleiðingar af því tagi sem hæstv. ráðherra setur fram eru eingöngu fólgnar í því að skattleggja verkafólk og iðnaðarmenn en ekki opinbera starfsmenn. (Gripið fram í.)