nýr samningur borgar og ríkis um samgöngumál.
Frú forseti. Það er ekki rétt að langflest alvarleg umferðarslys verði á höfuðborgarsvæðinu en þau eru hins vegar allt of mörg. Það hefur tekist að fækka alvarlegum slysum á þessu svæði, einkum með því að lækka hámarkshraðann og með hraðahindrunum. En það má alltaf gera betur og það verður að gera betur. Það verður ekki gert með því að fjölga akreinum eða byggja fleiri mislæg gatnamót, eins og hæstv. ráðherra benti réttilega á, því að rót vandans liggur einmitt í hinum mikla fjölda ökutækja sem er á götunum og í hraðakstri þeirra.
Með því að minnka bílaflotann og hægja á umferðinni verður ekki eins mikil þörf á stórum umferðarmannvirkjum. Með því móti er líka dregið úr slysum og úr loftmengun sem er eitt helsta umhverfisvandamál höfuðborgarsvæðisins. Öllum þessum markmiðum verður best náð með stóraukinni áherslu á almenningssamgöngur sem þar að auki eru líka ódýrari fyrir fjölskyldurnar í landinu en einkabíllinn. Allir græða, eða hvað?
Nú liggur fyrir stórmerkur samningur um tíu ára stuðning ríkisins til að tvöfalda hlutdeild almenningssamgangna í umferð á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er afar mikilvægt skref í aðkomu ríkisins að rekstri almenningssamgangna sem lengi hefur verið stefnumark Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og getur ef vel er á haldið markað upphaf að algerri byltingu í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Með samningnum er hægt að lækka kostnað heimila og samfélags vegna umferðar og umferðarslysa. Með honum má stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda sem er í samræmi við áætlun ríkisstjórnarinnar og með honum skapast einmitt forsendur til að fresta stórum, landfrekum og dýrum samgöngumannvirkjum en hlúa þess í stað að vistvænum samgöngum og hjólreiðum.
Það er hins vegar tilefni í aðra umræðu hvernig Sjálfstæðisflokkurinn bregst öndverður eins og nátttröll við þeim framförum sem hér eru boðaðar. (Gripið fram í.)