140. löggjafarþing — 99. fundur,  15. maí 2012.

nýr samningur borgar og ríkis um samgöngumál.

[14:41]
Horfa

Lúðvík Geirsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem kom fram fyrr í umræðunni að yfirskrift hennar er nokkuð sérstök, samningur milli borgarinnar og ríkisins. Auðvitað snýr þetta mál að öllu höfuðborgarsvæðinu, hinu sérstaka Stór-Hafnarfjarðarsvæði, eins og við tölum gjarnan um í Hafnarfirði.

Annað er líka sérstakt en það er sú nálgun að mæta þessum tímamótasamstarfssamningi á þeim grunni að hér steðji að einhver ógn og stórfelld hætta, hér blasi við að slysahætta og hættur í umferðinni munu sitja eftir, það sé stóra vandamálið sem við er að etja. Staðreyndin er sú að verið er að fara fram með metnaðarfullt og athyglisvert verkefni sem öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa barist fyrir um áratugaskeið. Ég tók sjálfur þátt í því sem formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um árabil að leiða sveitarfélögin saman í samninga við ríkið um að ríkið axlaði sína ábyrgð í því að byggja upp almenningsvagnaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Það gekk því miður ekki eftir. Ég fagna því að þessi áfangi hefur náðst og það er breið almenn pólitísk samstaða allra flokka á öllu höfuðborgarsvæðinu um þetta stóra verkefni. (Gripið fram í: Nema hvað?)

Við stóðum frammi fyrir því eftir hrunið, þegar sveitarfélögin þurftu að skera niður kostnað, að almenningsvagnaþjónustan á höfuðborgarsvæðinu var eitt af því sem því miður varð fyrir niðurskurðarhnífnum. Það var miður vegna þess að þörfin fyrir þjónustuna var einmitt að aukast á þeim tíma. Þess vegna fara menn fram með þetta verkefni, til að efla og styrkja þjónustuna þar sem þörfin er. Og úr því að rætt er um slysatíðni og hættu, er rétt að vekja athygli á því að einmitt þetta verkefni er til þess gert að draga úr umferðarþunga, auka umferðaröryggið, minnka slit á vegum og kostnað við gatnakerfið og auka hagsæld fyrir almenning með skynsamlegri umferð (Forseti hringir.) og bættum almenningssamgöngum.