140. löggjafarþing — 99. fundur,  15. maí 2012.

frávik vegna styrkja úr sjóði er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins.

376. mál
[15:38]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ísland hefur verið aðili að Vínarsamningi og öðrum samningum um skipti á sendimönnum og þar er meðal annars fjallað um skattfríðindi. Ég sit ekki í hv. efnahags- og viðskiptanefnd en það slær mig svo að hér sé um að ræða mun víðtækari skattfrádrætti eða skattundanþágur en er að finna í þeim samningum. Ég held að við séum að tala um mun víðtækari skattundanþágu sem nái til aðila sem eru ekki bara starfsmenn Evrópusambandsins heldur líka til dæmis verktakar á þeirra vegum. Það sama gildir ekki um þá sem vinna sem verktakar fyrir sendiráð eftir því ég best veit. Aðilar sem eru verktakar fyrir sendiráð borga bara sína venjulegu skatta, það eru bara sendimennirnir sjálfir og starfsmenn sendiráðanna sem eru undanþegnir sköttum en ekki önnur starfsemi sem er til hliðar við þetta.

Ég held að við verðum (Forseti hringir.) að greina töluvert á milli þess sem áratugareynsla er fyrir í samskiptum Íslands og annarra þjóða varðandi skipti á sendimönnum og skattfríðindi (Forseti hringir.) í því sambandi og síðan því sem verið er að gera hér því (Forseti hringir.) að það er alla vega verið að víkka verulega út reglurnar sem (Forseti hringir.) það hefur snúist um.

(Forseti (RR): Forseti beinir enn og aftur þeim tilmælum til hv. þingmanna að virða ræðutímann.)