frávik vegna styrkja úr sjóði er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins.
Virðulegur forseti. Ég verð að játa að það stóð ekki alveg til að ég kæmi í mína ræðu á þessum tíma. Það voru einhver forföll hérna þannig að ég ætla að fá að skipuleggja mig þar sem ég stend.
Mig langar aðeins að halda áfram með þá umræðu sem átti sér stað núna í andvörpum á milli hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar og hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar um eðli þessara styrkja. Við erum með tvö mál undir í dag, annars vegar frumvarpið sem nú er til umræðu um frávik frá lögum um skattaútgjöld vegna styrkja úr sjóði sem fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins og hins vegar þingsályktunartillögu sem við munum ræða á eftir. Þar sem ég er framsögumaður nefndarálits 2. minni hluta þar ætla ég að geyma mér þær athugasemdir sem mér finnst eiga við þingsályktunartillöguna en einbeita mér að því sem hér er til umræðu, skattamálunum.
Vegna þeirrar umræðu sem varð hér áðan er það alveg rétt sem fram kom í máli hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar að þetta er ekki svo flókið mál. Styrkirnir sem verið er að tala um að veita og verið er að leita heimildar til að Ísland gerist aðili að eru veittir af Evrópusambandinu í ákveðnum tilgangi. Við skulum bara segja hlutina eins og þeir eru, þeir eru veittir af Evrópusambandinu til að undirbúa og laga Ísland að þeim kröfum sem Evrópusambandið gerir. Ég verð að segja alveg eins og er að það er mjög erfitt að taka þessa umræðu út frá því sjónarmiði sem hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson kom með áðan. Hann taldi upp mörg ákaflega góð verkefni. Ég deili með honum þeim áhyggjum sem fram komu í máli hans af mannfjöldaþróun í Skaftárhreppi og skorti á tækifærum þar til atvinnuuppbyggingar. Ég deili svo sannarlega áhyggjunum af stöðunni á Suðurnesjunum og skorti á atvinnutækifærum þar en það er ekki það sem við erum að ræða hér. Það má ekki blanda saman þeim góðu verkefnum sem menn eru að sækja um og sækja í þá sjóði við það fólk sem er að sækjast eftir þeim styrkjum sem hér um ræðir. Það fólk er ekki að gera neitt annað en að nýta sér þau tækifæri sem eru í boði. Það sem verið er að gera athugasemdir við hér er að okkur sé kennt um, okkur sem erum andvíg því að Evrópusambandið komi hingað með fulla vasa fjár þegar við erum með klofna þjóð, klofið þing og klofna ríkisstjórn í aðildarumsóknarferli að Evrópusambandinu. Það er ekki verið að gera athugasemdir við þessi verkefni. Ég vildi að það kæmi skýrt fram í þessari ræðu minni vegna þess að ég hef fengið símtöl úr mínu kjördæmi, ég er í sama kjördæmi og hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson, þar sem menn spyrjast fyrir um af hverju í ósköpunum ég og félagar mínir úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins séum á móti þessum IPA-styrkjum. Ætlið þið að koma í veg fyrir þessi góðu verkefni? er ég spurð. Ég hef svarað því til að ég sé í prinsippinu andvíg því að við förum þá leið að þiggja styrki frá Evrópusambandinu til verkefna sem jafnvel sum hver virðast við fyrstu sýn ekki hafa neina skírskotun til aðildarferlisins en eiga það sammerkt að vera góð verkefni sem auðvelt er að tala fyrir og þá á verkefnið sem slíkt ekki að skipta máli í þessu.
Ef við viljum setja á laggirnar Kötlu-jarðvanginn eigum við í þessum sal að taka umræðu um það við fjárlagagerð og forgangsraða í þágu þess verkefnis. Ef við viljum veita styrki til að hægt sé að flokka fugla og spendýr eftir Evrópustöðlum skulum við taka umræðuna um það. Umræðan hér á að snúast um hvernig við forgangsröðum fjármunum okkar. Umræðan hér á svo sannarlega að vera um það hvernig við getum, íslensk stjórnvöld, íslensk fyrirtæki, íslenskur almenningur, nýtt okkur þá möguleika sem felast í Evrópusamstarfinu sem við erum þegar aðilar að og borgum til og tökum þátt í. Ég held að margar leiðir séu færar, í ýmsa rannsóknarsjóði á vegum Evrópusambandsins í gegnum samstarfið um Evrópska efnahagssvæðið sem við eigum að taka þátt í og þá gerum við það á okkar forsendum en ekki þannig að hér sé Evrópusambandið með gullkistu fyrir framan fólk til þess eins að reyna að hafa áhrif á viðhorfið til Evrópusambandsins. Það verður að segja það alveg eins og það er.
Ég geri líka athugasemd við það að þetta frumvarp, skattafrumvarpið, og þingsályktunartillagan sem við ræðum á eftir komi til umræðu og afgreiðslu svo seint sem raun ber vitni. Það var skrifað undir rammasamninginn fyrir hönd íslenskra stjórnvalda 8. júlí í fyrra. Málið kemur ekki hingað inn og í umræðu fyrr en í lok janúar á þessu ári, hálfu ári síðar. Þessi samningur er eins og aðrir samningar gerður með fyrirvara um samþykki Alþingis. Af hverju í ósköpunum þurfti það að taka hálft ár að koma með þingsályktunartillöguna og lagafrumvarpið inn til þingsins? Af hverju var þetta ekki rætt samhliða fjárlagafrumvarpinu? Eins og hér hefur komið fram er þegar búið að skuldbinda íslenska skattgreiðendur um 596 milljónir, bara á þessu ári, í fjárlögum þessa árs, 2012, vegna þessara verkefna. Við fyrri umr. um þingsályktunartillöguna spurði ég hæstv. utanríkisráðherra: Hvað gerist ef þingið fellir samninginn?
Það er ekkert óhugsandi, virðulegi forseti, að þingið felli samninginn vegna þess að við vitum að það er andstaða við þetta mál í öðrum stjórnarflokknum. Við vitum að það er andstaða við þetta mál í velflestum þingflokkum. Ég mundi ætla að Samfylkingin ein væri algjörlega fylgjandi þessu og kannski hin nýja sveit liðsmanna ríkisstjórnarinnar, Hreyfingin, (Gripið fram í: … ráðherra.) sem ég leyfi mér að segja að hafi breyst úr hækju í staurfót með því tilboði sem nú liggur fyrir ríkisstjórninni, en hún haltrar samt, þessi ríkisstjórn, þrátt fyrir það.
Það er alveg ástæða til að velta fyrir sér hvað gerist ef þessi þingsályktunartillaga og þetta frumvarp verða ekki samþykkt. Við sáum hvernig stjórnarmeirihlutinn beitti bolabrögðum við að taka málið út úr utanríkismálanefnd, bolabrögðum vil ég segja. Til voru kallaðir í upphafi fundar — ef ég hefði haft meira ráðrúm til að safna plöggunum mínum saman fyrir ræðuna hefði ég getað útlistað á hvílíkum mettíma þessi þingsályktunartillaga var afgreidd, reyndar sú sem verður rædd á eftir, nú erum við að ræða frumvarpið en þetta skiptir máli í þessu samhengi. Ég held að þremur mínútum eftir að fundurinn var settur, og þetta mál var þriðja mál á dagskrá, hafi málið verið afgreitt út umræðulaust þrátt fyrir að nefndin væri hvergi nærri fullskipuð, þrátt fyrir að nefndarmenn hefðu gefið formanni til kynna að þeir vildu vera viðstaddir og formanni mátt vera fullljóst að um þetta mál yrðu umræður. Þessi afgreiðsla er ekkert annað en bolabrögð, enda hefur það komið í ljós í umræðum á þinginu að stjórnarþingmaður í utanríkismálanefnd var mjög óánægður með afgreiðslu þessa máls. Ég leyfi mér að halda því fram að formaður utanríkismálanefndar og stjórnarmeirihlutinn hafi ákveðið að beita þessari aðferð til að koma málinu út vegna þess að annars hefði verið mikil hætta á að það kæmist ekki út úr nefndinni. Nefndin er þannig samsett að það eru fimm nefndarmenn (ÁÞS: Getur þingmaðurinn haldið sig við dagskrármálið …?) í utanríkismálanefnd sem hafa lýst efasemdum um þetta mál. Hér kemur hv. formaður utanríkismálanefndar og gagnrýnir það að ég haldi mig ekki við umræðuefnið. (Gripið fram í.) Ef hv. þingmaður hefði fylgst með ræðu minni frá upphafi (Gripið fram í: Ég …) vissi hann að ég var að ræða það hvernig málið kom hingað inn. (Gripið fram í: Hlustaðu …) Það tók hálft ár að leggja frumvarpið og þingsályktunartillöguna fram og síðan lá málið í utanríkismálanefnd áður en hægt var að taka það út, færis var sætt þegar nefndin var ekki fullskipuð. Hv. þm. Árni Þór Sigurðsson getur gert athugasemdir við þessi ummæli mín þegar hann fær tækifæri til þess í ræðustól en ég stend við þau. Það er hins vegar rétt hjá honum, og ég biðst forláts á því, frú forseti, að mér varð á að fara á milli mála enda tengjast þau ríkulega eins og menn vita.
Þessi meðferð á málinu og sú töf sem varð á framlagningu frumvarpsins og þingsályktunartillögunnar hefur ekki fengist útskýrð. Ég spurði við fyrri umr. málsins um þingsályktunartillöguna. Þá varð utanríkisráðherra til svara og hann svaraði því til að það hefði tekið svo langan tíma að útbúa frumvarpið í fjármálaráðuneytinu. Ég vil því leyfa mér við þessa umræðu að óska eftir því að annaðhvort formaður hv. efnahags- og viðskiptanefndar eða fjármálaráðherra svari því til hvort það sé rétt, hvort töfin eigi rætur að rekja til fjármálaráðuneytisins. Mér þykir mjög ankannalegt þegar verið er að skuldbinda ríkissjóð með þessum hætti að þetta taki svona langan tíma. Mér finnst það óásættanleg vinnubrögð.
Virðulegur forseti. Hér liggja fyrir nokkrar umsagnir í þessu máli og það vekur óneitanlega athygli mína að ekkert í þeim vísar í þá aðferð sem verið er að innleiða. Ekki get ég heldur séð að fjallað sé um það í áliti meiri hluta nefndarinnar. Henni er lýst í frumvarpinu eins og verið sé að færa til sama vegar skattlagninguna vegna þessara styrkja og þegar um alþjóðastofnanir eða sendimenn erlendra ríkja er að ræða. Ég hefði haldið að það þyrfti að leita frekari umsagna um það. Við fyrstu sýn er þetta flóknara að sjá og þetta er ekki alveg sambærilegt við það sem þar er um að ræða. Ég hygg að sams konar viðhorf hafi komið fram hjá hv. þm. Birgi Ármannssyni í andsvari fyrr í umræðunni við hv. þm. Helga Hjörvar. Ég held að það væri gott ef nefndin og nefndarmenn gætu fjallað um það í ræðum sínum hvort þetta atriði hefði verið skoðað sérstaklega og muninn á þessum styrkjum og meðferð þessara styrkja og því þegar um erlenda sendimenn er að ræða eða þá skattlagningu sem á við um alþjóðastofnanir. Ég veit að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sem á sæti í hv. nefnd gæti fjallað um þetta en ef ekki var ítarlega fjallað um þetta í nefndinni er spurning hvort ekki þurfi að skoða það sérstaklega á milli umræðnanna.
Virðulegur forseti. Eins og ég sagði í upphafi er í stuttu máli um að ræða kerfi sem Evrópusambandið kom á laggirnar þegar fjöldi ríkja í Austur-Evrópu sótti um aðild að Evrópusambandinu, var í þeirri aðstöðu að innviðir þeirra og starfsemi almennt uppfylltu ekki þær kröfur sem Evrópusambandið gerir til aðildarríkja sinna. Þessi aðildarríki vildu þar að auki ólm komast inn í Evrópusambandið, vildu færa samfélög sín upp, meira í áttina að því sem gerist á Vesturlöndum. Því var gripið til þess ráðs af hálfu Evrópusambandsins að útbúa þetta tæki, ef maður þýðir heitið er þetta ekkert annað en tæki, til að undirbúa aðild að Evrópusambandinu. Vandamálið hér er að yfirlýsingar hafa verið gefnar, hæstv. utanríkisráðherra hefur talað um það mjög fjálglega að Evrópusambandið viðurkenni að við ætlum ekki að aðlaga okkur fyrr en fyrir liggur samþykki íslensku þjóðarinnar um að ganga í þetta samband. Af hverju í ósköpunum erum við þá þátttakendur í þessu verkefni? Það er sú spurning sem ég hef aldrei fengið svar við. Af hverju í ósköpunum erum við aðilar að tæki til að undirbúa aðild að sambandi sem við segjumst ekki vilja laga okkur að fyrr en það liggur fyrir að við verðum aðilar? Í þessu er fólgin þversögn og ég held að það færi best á því að við felldum þennan samning og þetta frumvarp og tækjum ákvarðanir og forgangsröðun um okkar verkefni og okkar samfélag (Forseti hringir.) á okkar forsendum.