frávik vegna styrkja úr sjóði er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins.
Virðulegi forseti. Ég tek undir hvert orð sem þingmaðurinn sagði. Það er verið að skapa þarna grátt svæði. Það er verið að elítuvæða verktaka sem kallast í þessu frumvarpi ESB-verktakar. Þeir njóta svo mikilla hlunninda hér á landi að íslenskir verktakar geta ekki undir neinum kringumstæðum keppt við þá þegar þessir peningar halda áfram að streyma hingað til lands, 5 þús. milljónir.
Mig langar í framhaldi af þessu að spyrja þingmanninn hverja hann telur ástæðuna fyrir því að Evrópusambandið sjái í gegnum fingur sér með þetta vegna þess að við erum með EES-samning sem fjallar um frjálst svæði fólks og vöru o.s.frv. Skapar þetta ekki mikið ójafnræði og stríðir það ekki gegn EES-samningnum að þarna sé evrópskum verktökum hyglað á kostnað íslenskra verktaka? Er þetta ekki skýrt brot á EES-samningnum (Forseti hringir.) þar sem við erum að tala um frjálst flæði vinnuafls?