frávik vegna styrkja úr sjóði er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins.
Virðulegur forseti. Þessi spá hv. þingmanns er alls ekki ósennileg. En er ekki hv. þingmaður samt sammála mér um að við þingmenn almennt þurfum að fara að grípa inn í þegar menn halda áfram í afneitun eftir nokkur ár af meðal annars skriflegum tilkynningum frá Evrópusambandinu um mikilvægi aðlögunar? Menn halda meira að segja áfram að þræta fyrir að um aðlögun sé að ræða í umræðu um fjárveitingu til þess að standa í aðlöguninni. Er þetta ekki komið á það stig eftir þessi þrjú ár að við þingmenn almennt þurfum að fara að setja ríkisstjórninni stólinn fyrir dyrnar og segja: Hingað og ekki lengra, nú verðum við að endurmeta þetta ferli allt saman og ræða hvers eðlis það er í raun?